Það var mikil stemming og góður leikur sem boðið var upp á í gærkvöldi þegar Selfoss sigraði Víking með 40 mörkum gegn 32, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 21-16. Basti var aftur kominn á bekkinn eftir ævintýrið gegn Akureyringum og liðið var tilbúið til leiks aftur eftir mjög óheppilegt tveggja marka tap á föstudaginn fyrir ÍR. Leikurinn hófst fjörlega og það sást alveg frá byrjun að þetta yrði markaregn.
Sóknir beggja liða voru mjög sterkar en annað var hægt að segja um vörnina hjá þeim. Liðin skiptust á að komast yfir og þegar spennan var í hámarki og leikurinn hnífjafn kom Halldór í markið fyrir Birkir. Við það breyttist allt, Halldór varði hvert skotið fætur öðru og stóð sig hreint út sagt með ólíkindum. Við það gáfu Selfysingar í og komu sér fyrst í 19-16 og enduðu svo hálfleikinn með fimm marka mun, 21-16. Bæði lið spiluðu með hefðbundna 6-0 vörn.
Síðari hálfleikurinn var frekar jafn en Selfysingar voru með stöðuga þriggja marka forystu sem var sjaldan ógnað af Víkingum. Undir lokin tóku Selfysingar leikinn í hendur sínar með Halldór markvörð fremstan í flokki og skoruðu trekk í trekk þangað til staðan varð 40-32 og flautað var til leiksloka. Dómarnarir áttu fínan leik, 12 víti voru dæmd í leiknum og 9 tveggja mínútna brottvísanir voru gefnar. Salurinn var nánast fullur og stemmingin var mjög góð að vanda enda mikið af trommum og áhuga upp í stúku. Matthías Örn getur verið stoltur af frammistöðu sinni sem BT mús vallarins og Sverrir stóð sig með prýði við skúringarnar.
Selfoss-liðið kom mjög vel út í þessum leik, frábær sóknartilþrif sáust og glæsileg mörk eftir skemmtilegar leikfléttur. Það vantaði að vísu aðeins upp á varnarleikinn, en sóknin var frábær. Micael var markahæstur með 9 mörk og er hann án ef einn besti línumaður á landinu í dag. Atli Kristins hefur verið að leika mjög vel í vetur og skoraði hann 8 mörk með þrumuskotum í gærkvöldi, Ramunas Mikalonis var mjög góður líka. Ívar Grétarsson styrkir liðið mikið og leikur nú í stöðu leikstjórnanda og gerir það mjög vel, stjórnar spilinu vel og ógnar með hraða sínum og áræðni. Baldur og Hörður en Hörður gerði 7 mörk í leikinum og heldur unglingalandsliðsmanninum Guðmundi Árna á bekknum með þessari góði spilamennsku léku í hornunum og skiluðu sínu vel. Þá áttu Guðni og Ragnar fínar innkomur.
Í liði Víkinga var Þórir með flest mörkin en þau voru 9 talsins, á eftir honum komu Sverrir og Sveinn með 6 mörk, Pálmar og Ásbjörn voru með 3 mörk, Hjálmar og Gunnar með 2 og Brynjar rak lestina með 1 marki.
Um 270 áhorfendur voru á leiknum og frábær stemming. Fimm takt-fastir trommuleikar sá til þess að allir væru með á nótunum. Einn gamall stuðningsmaður hafði á orði að ”þetta væri að verða eins og í gamla daga”, liðið frábært, og margir áhorfendur.
