Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

17.10.2007 | Handbolti

Viðtal við Guðmund Árna unglingalandsliðsmann

Guðmundur Árni Ólafsson hefur verið valinn í landslið leikmanna sem fæddir eru 1988. Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að spila tvö ár upp fyrir sig. Mjög sjaldgæft er að leikmenn spili í unglingalandsliði með leikmönnum sem eru tveimur árum eldri. Guðmundur Árni fer á næstunni í tvær keppnisferðir með báðum unglingalandsliðunum. Heimasíðan lagði nokkrar spurningar fyrir Guðmund af þessu tilefni. 

Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta og með hverjum?
Ég byrjaði ekki að æfa handbolta fyrr en ég var 13 ára en ég hafði verið í frjálsum íþróttum frá 4 ára aldri. Það var Einar Guðmundsson sem fékk mig í handboltann. Hann kom einn daginn upp á frjálsíþróttavöll og spjallaði við mig og fékk mig til að koma og æfa. Eftir það var ekki aftur snúið!

Hvað æfir þú mikið í viku og hversu marga leikir spila þú á einu keppnistímabili?
Eftir að handboltaakademían byrjaði hef ég verið að æfa um 10 sinnum á viku undir stjórn Sebastíans Alexanderssonar og Arnars Gunnarssonar. Á komandi tímabili býst ég við að spila á milli 55-60 leiki fyrir utan landsleiki, sem ég vona að verði sem flestir.

Hvaða áhugamál hefur þú fyrir utan handboltann?
Það gefst lítill tími í annað en handbolta hjá mér. Ég stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands og stefni á frekara nám í verkfræði seinna meir. Svo finnst mér auðvitað gaman að hanga með félögunum og bróður mínum að gera hitt og þetta.

Hvað möguleika á Selfoss í vetur í meistaraflokki?
Ég tel að núna sé gullið tækifæri til að gera Selfoss að stórveldi að nýju. Í meistaraflokki eru mjög ungir leikmenn sem vaxa stöðugt og við verðum væntanlega í toppbaráttunni í ár.Yngriflokkastarfið er að skila frábærum hlutum og sterkir menn að koma upp.

Hvað möguleika á Selfoss í unglingaflokki?
Í unglingaflokki erum við með afburða leikmenn í öllum stöðum þar sem flestir hafa verið í landsliðsúrvali og við stefnum auðvitað á titil í vor.

Hvernig er að vera í unglingalandsliðinu og hvað er framundan þar?
Mér finnst það alveg frábært að fá þetta tækifæri. Það að fara til útlanda og sjá hvernig við stöndum miðað við aðrar þjóðir er aðeins til framdráttar. Á næstunni fer ég í tvær æfingaferðir, eina til Danmerkur og eina til Noregs og um jólin er síðan keppnisferð í Þýskalandi.

Hver eru framtíðaráform þín í handbolta?
Ég stefni alveg hiklaust á atvinnumennsku. Það væri síðan alger draumur að koma Selfossi aftur upp á toppinn á Íslandi og það er það sem ég vona að takist.

G.Arni 

Heimasíðan þakkar þessu geðþekka hornamanni fyrir spjallið og óskar honum góðs gegnis á handboltavellinum í framtíðinni.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta