Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

30.10.2007 | Handboltaakademía

Selfoss-strákarnir stóðu sig vel í Noregi

Íslenska unglingalandsliðið í handbolta vann Norðmenn tvisvar og tapaði einu sinni í þremur leikjum í Drammen í Noregi um helgina. Með liðinu leika þrír Selfyssingar þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Ragnar Jóhannsson og Einar Héðinsson. Liðið byrjaði frekar illa og tapaði fyrsta leiknum 32-26 eftir að hafa leitt í hálfleik 15-16. Ragnar og Guðmundur voru í byrjunarliði en Einar kom inn á í seinni hálfleik. Guðmundur var besti maður liðsins og skoraði 10 mörk, en Ragnar skoraði aðeins eitt mark.
Í öðrum leiknum lék íslenska liðið mun betur og vann öruggan sigur 22-28 eftir að hafa verið yfir 11-16 og náð mest 11 marka forustu í seinni hálfleik. Guðmundur skoraði 5 mörk í þessum leik og Ragnar eitt en lék vel í vörninni.
Í þriðja og síðasta leikum hafði íslenska liðið undirtökin allan leikinn og vann mjög öruggan sigur 28-33. Guðmundur skoraði 6. mörk í þeim leik, Einar átti mjög góða innkomu og gerði 4. mörk í seinni hálfleik og Ragnar gerði 3 mörk.
u90 menn2


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta