Selfyssingar lögðu Hauka 2 í æsispennandi leik í gærkvöldi. Selfoss er því komið í 3. sæti 1.deildar með 6 stig eftir 5 leiki, fjórum stigum á eftir ÍR og FH. Haukar 2 töpuðu hins vegar fimmta leik sínum í röð og verma þeir botnsætið ásamt Gróttu. Mjög góð mæting var á leikinn og salurinn var nánast fullur. Einnig var byrjað á BT leiknum, sá sem verður kosinn besta BT músin fær vegleg verðlaun í boði BT.
Leikurinn virkar þannig að áhorfendur fá miða og geta þar gefið BT músinni einkunn, svo skrifa þeir nafn sitt neðst á miðann og einn miði verður dreginn úr lukkupotti eftir hvern leik. Sá sem verður dreginn út fær verðlaun í boði BT. Dagur var eins og vitleysingur í BT búningnum og fékk áhorfendur oft til að hlæja með uppátækjum sínum.
Bæði lið spiluðu með 6-0 vörn. Leikurinn byrjaði mjög illa fyrir heimamenn og var staðan orðin 4-0 Hafnirðingum í vil þegar Basti tók leikhlé. Eftir það skiptust liðin á að skora. Atli Kristinsson skoraði trekk í trekk og hélt Selfyssingum inni í leiknum. Haukar komust í 10-5 en hálfleikurinn endaði 14-10 og útliðið virtist svart. Þrátt fyrir fólksfjöldann var ekki sérlega mikil stemming í fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var allt önnur saga. Ágúst Lillendahl var búinn að peppa upp áhorfendur til að styðja við liðið og yngri bróðir hans Marínó, trommarinn í Sirkuz, trommaði af krafti ásamt nokkrum öðrum og skapaði þetta ótrúlega stemmingu. Það tók Selfyssinga ekki langan tíma að koma sér í gírinn með þennan stuðning við og staðan breyttist í 20-16 eftir frábæran kafla hjá Selfoss-liðinu. Selfyssingar áttu að gera út um leikinn í þessari stöðu en tvær tveggja mínútna brottvísanir urðu til þess að Haukar 2 komust aftur inn í leikinn og jöfnuðu 20-20. Leikurinn var mjög jafn eftir þetta og skiptust liðin á að skora. Atli Kristinsson og Hörður Bjarnarson sköruðu algjörlega fram úr og skoruðu 19 mörk samtals. Þegar staðan var 24-24 náðu Selfyssingar að koma sér í 26-24. Þegar um 15 sekúndur voru eftir var staðan 27-26 Selfoss í hag og Haukar 2 með boltann. Úr sókn þeirra varð ekkert en spennan var í hámarki og stemmingin með ólíkindum. Þrátt fyrir sigurinn hélt Basti skammarræðu enda áttu Selfysingar að gera út um leikinn um miðjan síðari hálfleik. Þetta var frekar grófur leikur og þrjú rauð spjöld, ásamt nokkrum hnefum, fóru á loft.
Atli Kristinsson var atkvæðamestur í Selfoss liðinu með 11 mörk, Hörður Bjarnarson kom á eftir honum með 8, Ramunas Kalendauskas skoraði 3, Addi setti 2 og Hörður Másson, Ívar Grétarsson og Ramunas Mikalonis voru með 1 mark hver.
Í liði Hauka skoraði Þórður Ratu 7 mörk, Jóhann Gunnar 6, Orri Sturluson 4 mörk ásamt Styrmi Gunnarssyni. Einar Rafn skoraði 2 mörk, en Heimir, Vignir og Jónatan voru með 1 marki hver.
Ívan Guðjón Baldursson
