Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

6.11.2007 | Handboltaakademía

91-liðið lék tvo leiki fyrir norðan

Líkt og 90-liðið lék 91-liðið tvo leiki á Akureyri, við Þór á laugardeginum og KA daginn eftir.

Leikurinn við Þór var hörkuleikur þar sem heimamenn voru yfirleitt með frumkvæðið en okkar menn náðu yfirleitt að jafna og komast reyndar tvisvar yfir. Eftir jafnan fyrri hálfleik stóðu leikar að honum loknum 13-13. Tvisvar í seinni hálfleik komst Selfoss yfir en Þór svaraði jafnan fyrir sig og komst yfir þrjú mörk sem Selfyssingar náðu að jafna, er átta mínútur voru eftir, var staðan 23-23 og okkar menn með  með boltann. Þórsarar skoruðu 6-1 síðustu mínúturnar og unnu 29-24 í leik sem einkenndist af baráttu, átökum, barning og flottum tilþrifum inn á milli. Það má þó alveg ljóst vera að Selfoss hefði unnið þennan leik með sanngjarnri dómgæslu en gríðarlega hallaði á lið okkar í leiknum, þó ekki sé fastar að orði kveðið.

Bræðurnir Þór og Orri Davíðssynir áttu frábæran leik og voru bestu menn liðsins. Orri skoraði átta frábær mörk og lék mjög vel í vörn sem og Þór sem bætti við sex mörkum. Árni Steinn Steinþórsson lék vel í leiknum og skoraði sex mörk en var nokkrum sinnum óheppinn með skot sín. Sverrir Andrésson varði 21 skot en hefði engu að síður getað leikið betur.

Í gær lék svo liðið gegn KA og tapaði þar 28-20 í vægast sagt skelfilegum leik. í leikhléi stóðu leikar 16-9 fyrir KA. Lið KA er mun síðra en lið Þórs og því algjörlega óásættanleg frammistaða sem menn sýndu í þessum leik. Orri skoraði sex mörk og var einna skástur í liðinu ásamt Árna Steini sem skoraði fimm. Matthías Halldórsson lék vel í vörninni í báðum leikjunum en ekki eins vel í sókn en hann og menn eins og Trausti Eiríksson, Andri Már Sveinsson, Örn Þrastarson og Andri Hrafn Hallsson eiga mikið inni eftir helgina.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta