Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

9.11.2007 | Handboltaakademía

Fyrsti sigur 91-liðsins á FH orðinn að veruleika

Í gærkvöld kom yngra lið FH-inga í 3. flokki í heimsókn á Selfoss og lék við yngra lið Selfoss (91 árganginn). Þetta FH-lið hefur yfirleitt verið Selfyssingum erfiður ljár í þúfu og höfum við tapað flestum leikjum við þá undanfarin ár. Í fyrra t.a.m. vann FH allar fjórar viðureignirnar liðanna.

Leikurinn í gærkvöld byrjaði fremur rólega. Fyrri hálfleikur einkenndist af mörgum mistökum og hægum leik. Í stöðunni 6-6 stungu FH-ingar þó af og komust mest í fimm marka forystu, 9-14. Selfyssingar skoruðu síðasta mark hálfleiksins úr fríkasti eftir að tíma lauk. Það var Matthías Halldórsson sem skoraði það með hörkuskoti. Staðan í leikhléi því 10-14 FH í vil.

Þar sem Selfyssingar höfðu ekki leikið vel í fyrri hálfleik og gert aragrúa mistaka reiknuðu sennilega fæstir með sigri þeirra í leiknum. Eftir góða byrjun í seinni hálfleik náðu okkar menn að minnka muninn í tvö mörk og leikurinn virtist vera í járnum. Fimm mörk FH-inga án þess að Selfyssingar næðu að svara breyttu stöðunni í 14-21 og leikurinn virtist glataður. Þá var breytt um aðferð í sókn og Andri "strumpur" settur á miðjuna og Örn Þrastarson í hornið. Það gafst einkar vel. Örn nýtti líkamsstyrk sinn vel og náði alltaf tveimur mönnum á móti sér. Við það sköpuðust glufur sem okkar menn nýttu sér. FH tók leikhlé er Selfoss hafði minnkað muninn í 20-22. Selfoss jafnaði svo 23-23 og eftir það var aftur jafnt 25-25. Fjögur síðustu mörk leiksins voru svo okkar manna og 29-25 sigur staðreynd.

Þessi sigur náðist fram með frábærri liðsheild þar sem Örn Þrastarson átti stórleik. Hristi hann af sér slenið sem hefur fylgt honum í síðustu leikjum. Matti, Orri, Þór og Andri voru allir frábærir í vörninni og skoruðu frábær mörk. Trausti, Andri Már og Árni Steinn skliluðu allir góðu og mikilvægu framlagi. Sverrir varði 14 skot og hefur oft varið meira. En með vörn sem brýtur 49 fríköst er kannski ekki eins mikil þörf á því að verja yfir 20 skot.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

  • Ragnarsmótið 2010:

HK - FH 35 : 32 
Haukar - Fram 31 : 24
HK - Selfoss 30 : 31
Haukar  - Valur 23 : 17
Selfoss - FH 26 : 25
Fram -  Valur 25 : 29
1.-2. sæti:          
Selfoss - Haukar 34 : 32
3.-4. sæti:       :  
HK - Fram 38 : 34
5.-6. sæti:          
FH - Valur 24 : 23

Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK

byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta