Leikurinn var jafn fyrstu 15 mín. eða svo. Selfossvörnin átti í erfiðleikum með reynsluboltana, Daða Hafþórs og Konráð Olvasson, í Þróttarliðinu sem byrjuðu leikinn af miklum krafti. Þá var vörninni breytt og skelllt í lás. Markvarslan var frábær bakvið góða vörn og þá komu hraðupphlaupin. Þrátt fyrir 7 marka forystu í hálfleik þá mættu okkar menn einbeittir til leiks í seinni hálfleik og þrátt fyrir talsverðar hreyfingar á liðinu þá var keyrt áfram á sama krafti og áður. Sanngjarn sigur vannst að loknu góðu dagsverki.
Heimasíðan spurði Sebastian um hans skoðun á leiknum:
"Í síðasta leik náðu menn ekki að vinna eftir því sem lagt var upp með fyrir leikinn og því lentum við í vandræðum með Hauka2. Það er ánægjulegt að sjá það við höfum lært af þeim leik. Þessi leikur var spilaður eins og hann var lagður upp og meira getur þjálfari ekki farið fram á frá leikmönnunum sínum. Allir leikir eru erfiðir í þessari deild af mismunandi ástæðum og það þarf því ALLTAF að undirbúa sig þannig fyrir leik að hann verði erfiður. Geri menn það og spila síðan eftir því uppleggi sem þjálfarinn leggur áherslu á fyrir leikinn þá er ekki hægt að biðja um meira. Það er svo hægt að líta á töfluna eftir leik og séð hvort og hvernig niðurstöðu það skilaði."
Erfitt er að draga einhverja út úr hópnum sem besu leikmenn liðsins að þessu sinni því að alllt liðið spilaði vel í leiknum. Við látum því tölfræðina fylgja með og fólk getur metið sjálft hverjir stóðu sig best...
Atli Kristinsson 9 mörk (8 í fyrri hálfleik) - 8 stoðsendingar
Hörður Bjarnarson 7 mörk - 4 brotin fríköst
Gústaf Lilliendahl 6 mörk - 1 stoðsending - 7 brotin fríköst
Baldur Þór Elíasson 3 mörk - 3 stoðsendingar - 14 brotin fríköst
Ramunas Kalendauskas 3 mörk - 2 stoðsendingar
Ragnar Jóhannnsson 2 mörk - 4 boltum náð
Ívar Grétarsson 2 mörk - 3 stoðsendingar
Guðni Ingvarsson 1 mark - 1 stoðsending - 4 brotin fríköst
Ramunas Mikalonis 1 mark (meiddist á öxl í fyrri hálfleik eftir brot í gegnumbroti)
Arnar Gunnarsson var frábær í vörninni og hreinlega lokaði henni með fordæmi og stjórnun. Hann var með 10 brotin fríköst - 5 fráköst - 3 stoðsendingar.
Markvarsla:
Birkir F. Bragason 18 skot (fékk á sig 17 mörk) - 4 stoðsendingar og náði 2 boltum.
Halldór S. Grímsson 6 skot/1 víti (fékk á sig 2 mörk) - 1 stoðsending og náði 1 bolta.
Áfram Selfoss
