Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

16.11.2007 | Handboltaakademía

Stelpurnar úr leik í bikarnum

Á þriðjudaginn var leikur hjá 3. flokki kvenna. Stelpurnar léku gegn FH í íþróttahúsi Vallaskóla. Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfoss þar sem FH ingar skoruðu fyrstu 3 mörkin. En svo tóku stelpurnar við sér, fóru að sækja á markið og spila frábæra vörn og náðu stöðunni í 4-4. Áslaug hjálpaði þar mikið þar sem hún stóð sig frábærlega í markinu og staðan í hálfleik var 10-10.

Í seinni hálfleik var greinilegt að mikið stress var í stelpunum okkar því þær byrjuðu seinni hálfleikinn illa og töpuðu stöðunni í 11-16 FH í vil.
Þær skoruðu aðeins eitt mark á 18 mínútum. Stuttu eftir það tóku þær við sér og komust aftur inn í leikinn. En það var því miður of seint en nokkuð jafnræði ríkti til leiksloka en FH fóru með sigur af hómi.
Stelpurnar stóði sig samt með stakri príði og fer sífellt fram. Þær mega þó hafa meiri trú á sjálfum sér og leggja jafn mikla baráttu í alla leiki sem vonandi kemur eftir svona leik. Þær börðust vel og þess má geta að fjórir leikmenn FH spila með meistaraflokki svo aldrei var búist við auðveldum leik.

Markahæstar í liði Selfoss voru Hildur Öder Einarsdóttir með 10 mörk og Thelma Sif Kristjánsdóttir með 6 mörk. Margret Katrín Jónsdóttir skoraði 2 mörk og Kristrún Steinþórsdóttir , Jóhanna Margét Einarsdóttir og Bylgja Sigmarsdóttir skoruðu allar 1 mark. En hinar stóðu sig mjög vel og einna helst Áslaug Ýr Bragadóttir markmaður stóð sig glæsilega í markinu.

En markahæst í liði FH var Arnheiður Guðmundsdóttir.

Gaman var að fá stuðning úr stúkunni þar sem fjöldi áhorfenda lét sjá og heyra í sér.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta