Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.11.2007 | Handbolti

4. flokkur lék um helgina

A og B lið 4. flokks léku bæði sitthvorn leikinn um helgina. A liðið í bikarnum gegn Gróttu B og B liðið atti kappi við Stjörnuna í Mýrinni í Garðabæ í deildarleik.

Selfoss tapaði gegn Stjörnunni  í keppni B liða. Garðbæingar hafa á að skipa einu besta liði landsins í 4. flokki B og var því ljóst að leikurinn yrði erfiður fyrir okkar drengi.
Stjarnan hafði sigur í leiknum 25-15 eftir að í hálfleik hafi staðan verið 14-7, Stjörnunni í hag. Okkar men stóðu sig vel þrátt fyrir 10 marka tap. Stjarnan skoraði alls 12 mörk úr hraðaupphlaupum og var það það sem var fyrst og fremst munurinn á liðunum.
Bogi Thorarensen stóð sig vel í markinu og í sókninni gerðu Daníel Sebastíansson og Árni Felix Gíslason marga góða hluti. Í vörninni stóðu sig allir vel og var Jóhann Gylfi Guðmundsson þar áberandi.

A lið 4. flokks komst í gær áfram í bikarnum eftir sigur á B liði Gróttu. Leikurinn var lélegur og illa leikinn af hálfu okkar manna. Guðmundur Þórarinsson, Jökull Baldursson og Ketill Hauksson voru langbestu menn liðsins. Sigur hafðist 34-28 eftir að í hálfleik stóðu leikar 16-14. Liðið lék án Einars Sverrissonar og munar þar miklu um og Anton lék ekki nema ¼ af leiknum.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta