Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.11.2007 | Handboltaakademía

91 liðið úr leik í bikarnum

91-liðið í 3. flokki er úr leik í bikarnum eftir hetjulega baráttu gegn ÍR í Austurbergi í gær. ÍR hefur á að skipa allmörgum landsliðsmönnum og því var enginn í vafa um að um alvöru leik væri að ræða.

Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfossdrengi og ÍR komst snemma yfir sex mörk og virtist vera sem þeir hefðu ekki trú á því að geta lagt ÍR að velli. Strákarnir tóku sig þó á og löguðu varnarleik sinn eilítið og staðan í leikhléi 16-13 ÍR í vil.

Í seinni hálfleik sveiflaðist munurinn frá þremur og upp í sex marka forystu ÍR-inga. Selfyssingar áttu í fullu tré við Breiðhyltinga en herslumuninn vantaði. Lokatölur urðu 32-26 eftir mikla baráttu okkar manna. Matthías átti ágætan leik sem og Örn Þrastarson, Árni Steinn gerði marga góða hluti í leiknum en var óheppinn með mörg skota sinna, Trausti Eiríksson virðist vera búinn að finna sjálfstraustið aftur og Andrarnir stóðu sig allir ágætlega. Kamil Jónsson átti góða innkomu og Þór og Orri (Skapti og Skafti) stóðu sig vel.

Með meiri trú og betri nýtingu dauðafæra hefðu þeir allt eins getað tekið þennan leik og uppskorið óvæntan sigur. En það gerðist ekki og fá strákarnir annað tækifæri gegn þeim á fimmtudaginn næsta. Þá koma sömu ÍR-ingar í heimsókn á Selfoss og verður sá leikur svo sannarlega ekki gefinn af hálfu Selfyssinga.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta