Krakkarnir í 5. flokki spiluðu um helgina, stákarnir spiluðu á Ásvöllum í Hafnarfirði og stelpurnar í Fram-húsinu í Safamýrinni í Reykjavík. Selfoss sendi a, b og c lið til leiks bæði hjá strákum og stelpum og stóðu öll lið sig vel. Úrslit urðu eftirfarandi:
Strákar
A-lið: Lenti í 3. sæti í 1. deild með 4 stig. Unnu Fram, gerðu jafntefli við Aftureldingu og Stjörnuna, en töpuðu fyrir Gróttu sem vann riðilinn.
B-lið: Lenti í 2. sæti í 3. deild með 8 stig. Unnu Víking, ÍR, HK og Þrótt, en töpuðu fyri Haukum sem unnu riðilinn.
C-lið: Lenti í 3. sæti í 3. deild með 4 stig. Unnu Víking og Hauka 2, en töpuðu fyrir Fjölni 2 og FH 2.
Stelpur
A-lið: Lenti í 2. sæti í 3. deild með 4 stig. Unnu Val og Þrótt, en töpuðu fyrir Stjörnunni sem vann riðilinn.
B-lið: Lenti í 5. sæti í 1. deild. Töpuðu fyrir ÍR, FH, Gróttu og Stjörnunni. ÍR vann riðilinn.
C-lið: lenti í 4. sæti í 1. deild með 2 stig. Unnu Fjölni 1, en töpuðu fyrir Fylki, Gróttu og ÍR 1. Grótta vann riðilinn.
