Á föstudeginum spiluðu okkar strákar góðan sóknarleik og skoruðu talsvert meira en þeir eru vanir. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir Stjörnuna. Varnarleikur Selfoss sem vanalega er aðalstyrkur liðsins var afskaplega slakur og til marks um það þá voru þeir einungis með 1 brotið fríkast í fyrri hálfleik. Leikurinn endaði svo 39 - 30 fyrir Stjörnunni. Í liði Stjörnunnar voru Björgvin Hólmgeirsson og Hermann Ragnar Björnsson langbestir og skoruðu báðir nánast að vild og voru með yfir 10 mörk hvor. Hjá Selfossliðinu var Gústi markahæstur með 11 mörk, Sjóli 7, Sveinbjörn og Atli Hjörvar 3, Sæli og Kúldi 2 og loks Gunnar Ingi og Leifur 1 hvor. Í markinu varði Ástgeir 12 skot (33%) og Ísleifur 4 (33%).
Á laugardeginum var spilað við FH sem einnig er með frábært lið. Okkar strákar voru skynsamir og spiluðu hægar en þeir eru vanir sérstaklegsa í ljósi þess að ekki var nema rétt rúmur hálfur sólarhringur liðinn frá síðasta leik. Varnarleikur og markvarsla var mun betri en daginn áður. Aftur á móti náði liðið ekki að fylgja eftir góðum sóknarleik frá köldinu áður. Staðaní hálfleik var 14-10 fyrir FH. Í síðari hálfleik unnu strákarnir sig hægt og bítandi inn í leikinn aftur og jöfnuðu 22-22 og skammt eftir til leiksloka. Blanda af óheppni og klaufaskap varð þó til þess að leikurinn tapaðist 26-23 fyrir FH. Markaskorarar að þessu sinni voru Gústi og Sjóli með 5 mörk, Bjarki Már með 4, Atli Hjörvar með 3, Almar með 2 og loks Sveinbjörn, Kúldi, Sæli og Leifur með 1 mark hver. Ástgeir stóð í markinu allan leikinn og varði 18 skot (41%).
Liðið hefur ekki byrjað mótið vel, EN því til varnar ber að benda á það að það spilar betur með hverjum leiknum sem líður. Meiðsli og fáar æfingar hafa haft sín áhrif líka en þetta lið getur aðeins æft 2 sinnum í viku og það á óásættanlegum tíma. Það stendur víst til bóta eftir áramót.
