Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

21.11.2007 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur með jafntefli á útivelli á móti Gróttu

Varnaleikurinn var góður að vanda en sóknarleikurinn var ótrúlega slakur og staður í þessum leik. Í þau fáu skipti sem sýnd var þolinmæði í leikkerfunum kom nánast alltaf tækifæri til að skora en allt of oft var reynt að taka fyrsta sjens sem Gróttuvörnin var vel undirbúin að stoppa. Þá var frjálst spil lítið betra þar sem sama óþolinmæðin var til staðar. Gróttuliðið fékk að stjórna leiknum lengstum í leiknum og þurftu okkar menn að spila þeirra bolta í stað þess að spila þann handbolta sem hentar Selfossliðinu betur.

Annað atriði sem spilaði mikið inn í slakan sóknarleik er að dómarar leiksins leyfðu stanslaust peysutog og hrindingar sem gerði það að verkum að sóknarmenn Selfossliðsins komust aldrei í sómasamlegt færi. Það sést best á því að nánast allir leikmenn Selfoss eru með um og langt yfir 50% skotnýtingu í leiknum. Vandamálið var bara að komast í skot. Í leikslok voru nokkrir búningar svo illa rifnir að þeir eru hreinlega ónýtir. Þess heldur var þolinmæði í sóknarleiknum mikilvægari fyrir vikið eins og áður hefur verið minnst á. Þetta þýðir það bara að okkar menn verða greinilega að koma ákveðnari til leiks á móti Gróttu næst til þess að vera tilbúnari í þessi átök.

Það má því segja að þetta stig hafi unnist fremur en tapast því að Grótta leiddi mest allan leikinn með 1-2 mörkum. Selfossliðið var einungis tvisvar með forystu í leiknum en það var í stöðunni 19-20 og 21-22. Grótta jafnaði þegar 50 sek. voru eftir af leiknum og markvörður Gróttu varði svo síðasta skotið og niðurstaðan jafntefli.

Markaskorarar Selfoss:
Atli 4 mörk úr 6 skotum, 3 stoðsendingar og 1 fengið víti
Hörður 4 mörk úr 7 skotum, 3 stoðsendingar og 1 fengið víti
Ragnar 4 mörk úr 5 skotum, 2 stoðsendingar
Mikalonis 3 mörk úr 6 skotum
Arnar 2 mörk úr 2 skotum, 1 stoðsending, 5 fráköst, 2 varin skot og 11 brotin fríköst
Gústaf 2 mörk úr 3 skotum og 1 fengið víti
Baldur 1 mark úr 1 skoti, 2 stoðsendingar og 6 brotin fríköst
Guðni 1 mark úr 1 skoti
Michal 1 mark úr 1 skoti, 2 stoðsendingar og 4 brotin fríköst
Ívar 0 mörk úr 3 skotum, 3 stoðsendingar og 2 fengin víti
Kúldi 0 mörk úr 1 skoti

Halldór varði 14 skot þar af 2 víti og var með 39% markvörslu.

Næsti leikur er á móti toppliði ÍR á heimavelli þann 29. nóvember. Stuðningurinn hefur verið frábær hingað til en nú fyllum við kofann og höldum áfram sigurgöngunni á heimavelli.

Áfram Selfoss!!!


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta