Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

22.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss að gera góða hluti í 1. deildinni

... tvo fulltrúa í liðinu auk þess sem að Atli Kristinsson var valinn besti leikmaður 1. umferðarinnar. Þá er það álit þjálfarana og síðunnar að Selfoss sé með bestu umgjörðina á leikjum í deildinni. Þetta er klárlega hvatning til okkar að gera enn betur og þið áhorfendur góðir eigið klárlega stóran þátt í því. Takk fyrir stuðninginn.

Ekki viljum við Selfyssingar vera vanþakklátir en furðum okkur samt á því að Birkir F. Bragason sem er með 47% markvörslu og 18 skot varin að meðaltali í leik skuli ekki líka vera í liðinu. En vera má að Árni hafi gert betur þannig að við treystum þjálfurunum og síðunni fyrir því.


Frábært framtak hjá þessari frábæru síðu enda prentmiðlarnir eingöngu að velja sambærilegt lið úr úrvalsdeildunum.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
..Tekið af www.handbolti.is
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Úrvalslið 1 deildar

Þjálfarar og www.handbolti.is hafa valið úrvalslið 1. umferðar í 1. deild karla.  Að auki var valinn besti leikmaðurinn, þjálfarinn og það lið sem hefur staðið sig best í umgjörð í kringum leiki.


Úrvalsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum:

Markmaður:  Árni Gíslason, Þrótti.
Vinstra-horn:  Guðmundur Pedersen, FH.
Vinstri-skytta:  Atli Kristinsson, Selfossi.
Miðja:  Aron Pálmarsson, FH.
Hægri-skytta:  Sverrir Hermannsson, Víkingi.
Hægra-horn:  Hörður Bjarnason, Selfossi.
Lína:  Atli Rúnar Steinþórsson, Gróttu.
Besti leikmaður:  Atli Kristinsson, Selfossi. 
Besti þjálfari:  Elvar Örn Erlingsson, FH.
Besta umgjörð:  Selfoss.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta