Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.11.2007 | Handboltaakademía

Óvandað orðalag!

Á heimasíðu Gróttu má sjá eftirfarandi umfjöllun um síðasta leik þeirra gegn Selfoss.

"Mikil harka var í leiknum og leyfðu dómarar leiksins Selfyssingum að komast upp með fautaskap sem fátt á skilt við hina fögru list, handboltann."

Vissulega var leikurinn óþarflega harður en hann var það á báða bóga og enda Gróttumenn með 7 brottvísanir og Selfoss 8. Vissuega kom fram í umfjöllun á okkar heimasíðu að "dómarar leiksins hefðu leyft stanslaust peysutog og hrindingar" en hvergi er talað um fautaskap né að það hafi ekki átt neitt skilið við handbolta. Þvert á móti er sóknin gagnrýnd fyrir óþolinmæði og Gróttumönnum hrósað fyrir að sjá við leikkerfum okkar. Þessi athugasemd hjá þeim er álíka ósmekkleg eins og í umfjöllun okkar hefði staðið:

"og leyfðu dómarar leiksins Gróttumönnum að komast upp með langar og leiðinlegar sóknir sem eiga fátt skilið við hina fögru list, handboltann".

Það væri auðvelt að skrifa eitthvað svona ef maður hefði ekki vit á handbolta en staðreyndin er sú að Gróttumenn spiluðu frábæran varnarleik samkvæmt þeirri línu sem dómararnir lögðu og agaðan sóknarleik þar sem þá vantaði sterka leikmenn í sóknina. Sóknarleik sem skilaði þeim því að þeir komu í veg fyrir hraðupphlaup Selfossliðsins. 

Það er ekki hægt annað en að svara þessari athugasemd því að hún virðist sett fram í þeim eina tilgangi að koma slæmu orði á Selfossliðið og mynda skoðanir á því hjá fólki sem veit ekki betur.

Annað er líka frekar óskiljanlegt hjá þeim og það er það að blanda þjóðerni leikmanna í málið:

"3 sterkir leikmenn heimamanna sátu meiddir upp í stúku, meðan austanmenn hafa jafnmarga útlendinga á sinni launaskrá".

Hvað vita þeir um það hvort þessir menn séu á launaskrá? Skiptir þjóðerni einhverju máli í þessu samhengi? Er ekki Grótta með Íslendinga á launaskrá? Hefði ekki verið eðlilegra að segja að þeirra leikmenn hafi vantað á meðan Selfossliðið hafi verið fullmannað. Skilaboðin hefðu alveg komist til skila hvort sem þau áttu að vera að þeir hafi náð góðum úrslitum m.v. mannskap eða þá að Selfossliðið sé slakt þrátt fyrir að vera með 3 "útlendinga".

Þess má geta að Ramunas Mikalonis á lögheimili á Selfossi og hefur búið hér í ein 7 ár. Hann á hér fasteign og konan hans rekur fyrirtæki í bænum og þau borga gjöld til samfélagisns eins og aðrir Selfyssingar. Við lítum á hann og aðra leikmenn okkar sem íþróttamenn en ekki útlendinga annars vegar og Íslendinga hins vegar.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta