Fyrst var það útileikur við Stjörnuna 25. nóvember, en hann endaði 32-32 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 17-14 í hálfleik fyrir Stjörnunni. Varnarleikur strákanna var afspyrnuslakur og náðu þeir aldrei að sjá við skynsömum og vel útfærðum sóknarleik Stjörnunnar og þá skipti engu máli hvaða varnarafbrigði var spilað. Þetta er í eina skiptið í vetur sem liðið hefur fengið svona mörg mörk á sig enda aðeins með 24 mörk að meðaltali á sig fyrir utan þennan leik. Sóknarleikurinn var hins vegar góður eins og vanalega.
Helsta tölfræði:
Gummi 10 mörk úr 14 skotum, 1 fengið víti
Einar 8 mörk úr 10 skorum, 2 fengin víti
Raggi 6 mörk úr 16 skotum, 7 stoðsendingar
Siggi 3 mörk úr 7 skotum
Bjarki 3 mörk úr 4 skotum, 2 stoðsendingar
Halli 2 mörk úr 2 skotum, 6 stoðsendingar, 1 fengið víti
Helgi varði 21 skot (40%)
Næst var það leikur gegn Haukum á Ásvöllum 1. desember. Haukar eru með mjög sterkt lið og áttu t.d. 4 menn í síðasta landsliðsvali. Haukar höfðu bara tapað einum leik fram að þessu og því var viðbúið að á brattann yrði að sækja. Leikurinn vannst loks 25-26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-14 fyrir okkar stráka. Mest komst Selfoss í 13-20 en þá tóku Haukar við sér og unnu síðasta korterið 12-6 og mátti minnstu muna að Selfoss hefði misst leikinn í jafntefli eða tap. Haukar náðu reyndar aldrei að vera yfir í leiknum, en minnstu munaði þó í lokin. Varnarleikurinn var mjög góður í þessum leik og markvarslan frábær. Helgi varði t.d. skotið sem hefði getað jafnað leikinn stuttu fyrir leikslok en í staðinn náðu okkar strákar að skora og komast 2 mörkum yfir aftur. Það voru svo Haukar sem skoruðu síðasta markið. Eftir að Einar hafði fengið 3 brottvísanir þá koma smá óöryggi í varnarleikinn þar sem það þurfti að breyta um vörn en það tókst þó að finna taktinn aftur sem skilaði frábærum sigri.
Helsta tölfræði:
Raggi 7 mörk úr 16 skotum, 3 stoðsendingar, 9 brotin fríköst
Bjarki 6 mörk úr 13 skotum, 7 brotin fríköst, 1 varin bolti
Hemmi 5 mörk úr 6 skotum, 2 brotin fríköst
Gummi 4 mörk úr 7 skotum, 1 stoðsending, 1 brotið fríkast
Einar 2 mörk úr 4 skotum, 2 fengin víti, 9 fríköst, 2 varðir boltar
Siggi 1 mark úr 4 skotum, 5 stoðsendingar, 8 brotin fríköst, 2 varðir boltar
Halli 1 mark úr 3 skotum, 11 stoðsendingar, 1 fengið víti, 1 brotið fríkast
Sissi 1 brotið fríkast
Helgi varði 22 skot þar af 2 víti (47%) - maður leiksins án efa
Nú fá strákarnir loksins heimaleik á morgun fimmtudag á móti FH2 kl. 19:30 í Vallaskóla. Endilega koma og sjá strákana spila.
