Varnarleikurinn var slakur og andlaus. Sóknarleikurinn var reyndar ágætur og voru strákarnir að spila sig ítrekað í góð færi sem náðist bara engan veginn að nýta, sérstaklega í fyrri hálfleik. Markvörður UMFA hreinlega lokaði markinu á stórum köflum í leiknum. Í sjálfu sér er lítið meira að segja um leikinn annað en það að strákarnir verða bara að leggja meira á sig í komandi leikjum til að fá hagstæðari úrslit. Liðið hefur verið að spila vel inná milli en í þeim leikjum hefur ekki tekist að landa stigum eins og þeir hefðu átt skilið í öðrum leikjum hefur liðið hreinlega spilað undir getu og fengið tvær rasskellingar. Á móti Stjörnunni og svo aftur í gær.
Helsta tölfræði:
Sjóli 8 mörk úr 13 skotum, 6 stoðendingar, 9 brotin fríköst
Atli Hjörvar 5 mörk úr 7 skotum, 5 brotin fríköst
Gústi 4 mörk úr 6 skotum, 2 fengin víti, 5 brotin fríköst
Hermann 2 mörk úr 3 skotum, 2 brotin fríköst
Sæli 2 mörk úr 7 skotum
Kúldi 1 mark úr 5 skotum, 2 stoðsendingar, 5 brotin fríköst
Almar 1 mark úr 3 skotum, 1 brotið fríkast
Leifur 1 mark úr 2 skotum, 1 brotið fríkast
Sveinbjörn 0 mörk úr 1 skoti, 2 stoðsendingar, 4 brotin fríköst
Bjarki 0 mörk úr 1 skoti, 1 brotið fríkast
Halli 0 mörk úr 1 skoti, 2 stoðsendingar
Ísleifur spilaði 50 mín. og varði 15 skot / 1 víti (37%)
Ástgeir spilaði síðustu 10 mín. og varði 5 skot (45%)
