Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

6.12.2007 | Handboltaakademía

Þórir Ólafs viðbeinsbrotinn

Þórir Ólafsson varð fyrir því óláni á æfingu í gær að viðbeinsbrotna á hægri öxl. Þórir var að stökkva inn úr horninu og var hrint með þeim afleiðingum að hann lenti illa á hægri öxlinni og viðbeinið fjór-brotnaði. Hann verður frá keppni fram í mars og þarf hugsanlega að fara í aðgerð.

Samningur Þóris við þýska úrvalsdeildarliðið TuS N-Lübbecke rennur út í vor og nú þegar hafa nokkur lið spurst fyrir um hann, en vonandi setja þessi meiðsli ekki strik í reikninginn hjá honum. Þórir sagði í samtali við heimasíðuna að hann reiknaði með að leika áfram í Þýskalandi en gaman væri fyrir hið unga lið Selfoss að fá hann heim til að leika með Selfoss og taka þátt í hinni miklu uppbyggingu í handboltanum hér.

Thorir


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta