Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

6.12.2007 | Handboltaakademía

17 krakkar úr Flóahreppi æfa handbolta á Selfossi

Krakkar úr Flóahreppi eru dugleg að sækja handboltaæfingar á Selfossi, en 17 krakkar úr sveitinni hér í kring æfa nú handbolta á Selfossi sem er mjög hátt hlutfall. Nokkrir krakkar koma ofan úr Grímsnesi, af Skeiðunum og einn úr Gnúpverjahreppi sem lætur sér ekki muna um að koma 45 km leið á handboltaæfingar.

Athygli vekur að fá börn koma frá Eyrabakka og Stokkseyri sem eru þó innan sama sveitarfélags. Handknattleiksdeildin tekur þessum öfluga liðstyrk úr Flóahreppi fagnandi enda harðduglegir krakkar og til fyrirmyndar í sinni íþróttaiðkun.

Meðal annars hafa þeir Birkir Fannar Bragason frá Gegnishólum, Hörður Másson frá Dalbæ og Árni Steinn Þorsteinsson frá Oddgeirshólum allir æft með unglingalandsliðum Íslands.

Spurning er hvort að Vaka, Samhyggð eða Baldur tefli fram liði í framtíðinni, hver veit ?

magnús og Hákon

Bræðurnir Magnús og Hákon frá Halakoti eru tveir af fjölmörgum iðkendum úr Flóahreppi. Systir þeirra Hildur er lykilmaður í 3. flokki kvenna.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta