Víkingar byrjuðu betur og komust í 7 - 3 á 15 mín. en eftir leikhlé og smá kipp þá var Selfoss búið að jafna í 9 - 9 eftir aðeins 5 mín. Þá tók Reynir Þór leikhlé og Víkingar fundu taktinn aftur og 10 mín. síðar þegar flautað var til hálfleiks þá leiddu Víkingar 16 - 11 eins og áður sagði. Mikið var skipt inná í fyrri hálfleik og virtist sem bekkurinn hjá Selfoss væri ekki að ná að finna réttu uppstillinguna hvorki í vörn né sókn.
Selfoss skipti um vörn í byrjun seinni háfleiks en það Víkingar fundu lausnir við henni og þá var sóknarleikurinn ekki að lagast. Seinni hálfleikurinn byrjaði því eins og sá fyrri hafði endað. Víkingar komust fljótt í 20 - 14. Þá var sem að bekkurinn hjá Selfoss fyndi loksins réttu uppstillinguna og Selfoss tók loksins að spila þann handbolta sem hefur verið týndur uppá síðkastið. Á aðeins 10 mín. náði liðið að jafna 25 - 25. Þá tók Reynir Þór aftur leikhlé og Víkingar náðu að halda frumkvæðinu þar til u.þ.b. 8 mín. voru eftir að Selfoss komst yfir 32 - 31 og fékk boltann og aðeins tæpar 2 mín. eftir. Góður markvörður Víkinga í leiknum varði og Víkingar jöfnuðu. Selfoss fékk gott færi til þess að skora í sókninni á eftir en aftur varði markvörður Víkinga og þeir fengu tækifæri til þess að skora sigurmarkið í leiknum. Víkingur missti boltann og Selfoss tók leikhlé um leið og þá voru aðeins 6 sek. á klukkunni. Vörn Víkinga náði síðan að stoppa tilraun Selfoss og því varð niðurstaðan jafntefli.
Liðið sýndi gríðarlegann karakter í þessum leik og kom hvað eftir annað til baka og allir leikmenn liðsins lögðu eitthvað á vogarskálarnar til þess að ná upp trú og baráttu í mótlætinu. Hinn týndi sóknarleikur liðsins fannst eftir langa leit og þá batnaði varnarleikurinn þegar á leið. Vonandi að það sé þá búið að finna réttu uppstillinguna í fjarveru Baldurs og Arnars enda gríðarlega erfitt að missa miðju varnarinnar út á einu bretti. Það er því tilefni til bjartsýni þegar besta lið deildarinnar kemur í heimsókn á Selfoss næsta fimmtudag. Það má því alveg gera sér vonir um það að FH muni tapa sínum fyrsta leik í vetur, sérstaklega ef stuðningurinn verður eins og í síðasta heimaleik.
Helsta tölfræði:
Ragnar 8 mörk úr 12 skotum, 1 stoðsending, 6 brotin fríköst
Atli 6 mörk úr 10 skotum, 5 stoðsendingar, 1 fengið víti, 3 brotin fríköst
Ívar 6 mörk úr 7 skotum, 12 stoðsendingar, 3 brotin fríköst
Michal 5 mörk úr 7 skotum, 2 fengin víti, 4 brottrekstar á andstæðing, 6 brotin fríköst
Guðni 3 mörk úr 6 skotum, 3 unnir boltar, 11 brotin fríköst
Mikalonis 2 mörk úr 3 skotum, 1 varinn bolti, 6 brotin fríköst
Hörður 2 mörk úr 5 skotum, 2 stoðsendingar
Óskar Kúld 0 mörk úr 1 skoti, 1 stoðsending
Einar 0 mörk úr 0 skotum, 1 frákast, 7 brotin fríköst (á 12 mín.)
Sjóli 0 mörk úr 3 skotum, 1 frákast, 3 brotin fríköst
Halldór varði 13 skot (30%), 2 stoðendingar
Basti varði 4 skot (67%) - kom inná á 51 mín. -
Selfoss - FH, 13 des. kl. 19:30 - Nú þurfum við á þér og öllum sem þú þekkir að halda til að styðja okkur í baráttunni á fimmtudaginn.
Áfram Selfoss
