Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

12.12.2007 | Handbolti

4.flokkur yngra ár bætir sig jafnt og þétt

B-lið 4. flokks (þ.e. yngra árs liðið) spilaði á útivelli við Stjörnumenn sunnudaginn 25. nóv. Stjarnan er með eitt besta liðið í þessum aldursflokki og mátti því búast við hörkuleik. Selfyssingar spiluðu fínan bolta í fyrri hálfleik eins og hefur einkennt liðið í undanförnum leikjum. Vörnin góð þó svo að sóknarleikurinn mætti vera skarpari.  Staðað í hálfleik var 11-10, Stjörnumönnum í hag. Seinni hálfleikurinn hófst ágætlega, en fljótlega fór að bera á kæruleysi og lélegum hugsanagang okkar manna og misstu þeir því leikinn alveg niður, vörnin hætti að virka, þá aðallega að Árni Felix og Jóhann Gylfi hættu að ná almennilega saman. Aðal vandamálið var hins vegar sóknin, þar sem hver sendingarmistökin á fætur öðru áttu sér stað sem skapaði ótal mörg mörk úr hraðaupphlaupum fyrir Stjörnumenn. Endaði leikurinn því  27-18, fyrir Stjörnumenn.

Margt jákvætt má hins vegar sjá úr þessum leik, t.d. þegar þessi sömu lið spiluðu gegn hvort öðru í vor, sem 5. flokkur, þá unnu Stjörnumenn yfirburðarsigur, 32-9. Það má því segja að okkar strákar hafi bætt sig verulega mikið og ættum við alveg að geta sigrað öll þessi lið í deildinniþegar lengra líður á veturinn.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta