Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

14.12.2007 | Nýjustu fréttir

Vormenn Íslands - saga UMFÍ í 100 ár, komin út

Bókin, Vormenn Íslands, Saga UMFÍ í 100 ár, kom út nú á haustdögum og hefur að geyma sögu Ungmennafélags Íslands frá upphafi eins og nafnið bendir til. Þarna er að finna mikinn fróðleik um ungmennafélagshreyfinguna sem auðvelt er að fletta upp með aðstoð efnisyfirlits og nafnaskrár. Þessi bók mun því væntanlega skipa virðingarsess hjá hverju einasta aðildarfélagi innan UMFÍ.

Ungmennafélag Íslands óskaði eftir því við sambönd sín að þau sæju til þess að bókin yrði eign allra aðildarfélaga. Stjórn HSK taldi sjálfsagt að verða við því og skráði öll félög sambandsins á heiðursáskriftalista bókarinnar. Því er svo við að bæta að þeir sem vilja eignast bókina geta nálgast hana á skrifstofu HSK á kr. 8.500.

Ungmennafélag Íslands óskar aðildarfélögum HSK til hamingju með þessa eigulegu bók og vonast til að hún verði þeim bæði til gagns og gleði.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta