FH vann Selfoss í toppslag 1. deildar 30-34 í leik sem fram fór á Selfossi í kvöld.
Leikurinn byrjaði jafnt og var jafn þangað til í stöðunni 3-3. Ragnar Jóhannsson skoraði fyrsta mark leiksins og var það í eina skipti sem Selfyssingar komust yfir í leiknum. FH-ingar spiluðu góða 3-2-1 vörn með Ólaf Guðmundsson í fararbroddi sem var atkvæðamikill í hraðaupphlaupum FH-inga. Eftir að staðan hafði verið 3-3 tók góður kafli FH-inga og sáu Selfyssingar aldrei til sólar í fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn var tilviljanakenndur og allan aga vantaði í leik Selfyssinga og var mikið um tæknifeila. Á meðan var sókn FH-inga vel skipulögð með Aron Pálmason í fararbroddi sem 6-0 vörn Selfyssinga réð ekkert við í bland við slaka markvörslu.
Hálfleikstölur voru 12-17.
Selfoss breytti í 3-2-1 vörn og byrjuðu seinni hálfleikinn ágætlega. Við það fór sóknarleikur FH-inga að hiksta, en þá tók reynsluboltinn Guðmundur Pedersen við sér og skoraði hvert markið á fætur öðru úr ótrúlegustu færum. Um miðjan seinni hálfleik var staðan 18-26 fyrir FH. Þá tóku Selfyssingar leikhlé og í kjölfar þess hrökk vörnin í gang og skilaði það nokkrum hraðaupphlaupum í kjölfarið. Breyttu þeir stöðunni í 26-28 þegar 10 mínútur voru til leiksloka. Síðan fengu Selfyssingar tvisvar sinnum tvær brottvísanir og þá má segja að leikurinn hafi klárast. Á 29. mínútu fékk Atli Kristinsson Selfyssingur beint rautt fyrir agalaust sóknarbrot. Leikurinn endaði 30-34 og má segja að FH liðið hafi verið of stór biti fyrir lærisveina Sebastians sem léku án þriggja lykilleikmanna.
Sebastian Alexandersson sagði að FH-ingar hafi verið betri frá fyrstu mínútu. ,,Við vorum einfaldlega ekki tilbúnir að takast á við þetta verkefni, ef við hefðum ekki verið án okkar lykilleikmanna í kvöld þá hefðum við hreinlega unnið". Sebastian sagði einnig að Aron Pálmason hafi verið besti maður FH-inga í kvöld.
Elvar Erlingsson sagði að góður undirbúningur, mikill metnaður og baráttuandi hafði skilað sér í leik FH í kvöld. ,,Selfoss liðið kom okkur í raun ekkert á óvart. Við vissum að þeir væru með sterkt lið og þeim fyndist gaman að spila heima, en við vissum líka hvar veikleikar þeirra lágu og við nýttum okkur það.
Markahæstu menn Selfoss:
Mikal Dostalik 7 mörk
Ragnar Jóhansson 5 mörk
Atli Kristinsson 4 mörk
Markahæstu menn FH:
Guðmundur Pedersen 10 mörk (Maður leiksins, að mati Handbolti.is)
Aron Pálmason 7 mörk
Ólafur Guðmundsson 6 mörk
Dómarar: Anton Gylfason og Helgi Rafn Hallsson
Áhorfendur voru kringum 300
Bjarki Már og Halldór Stefán skrifa fyrir www.handbolti.is
