Sóknin betri en vörnin brást
Ekki alls fyrir löngu var sóknarleikur og markaþurrð mesti höfuðverkur þjálfarans. Vörnina og markvörsluna gat hann hins vegar treyst á. Í síðustu tveimur leikjum hefur sóknarleikurinn lagast til mikilla muna m.v. leikina þar á undan og skoraði liðið 32 mörk á móti Víkingi og 30 mörk í gær. Á sama tíma bregst sterkasta stoð liðsins sem er varnarleikur og markvarsla. Sebastian er þvi ekki í öfundsverðu hlutverki því að um leið og sóknin er löguð þá bregst vörnin. Hins vegar er það athyglisvert og ekki verður litið fram hjá því að síðan Arnar Gunnarsson meiddist þá hefur liðið fengið á sig 66 mörk í tveimur leikjum. Í hinum 8 leikjumnum þar á undan hefur Selfoss vörnin fengið að meðaltali á sig 25 mörk í leik. Það er því ljóst að varnarleikur Selfyssinga má alls ekki við því að vera án hans. Þá hjálpar það heldur ekki til að það skuli vanta líka Baldur Þór og Birkir sem ásamt Arnar eru helstu ástæðurnar fyrir góðum árangri í því að halda markaskorun andstæðinganna í skefjum.
FH-ingar fengu auðveld skot og hraðaupphlaup
Varðandi leikinn í gær þá var ljóst strax í upphafi að varnarleikurinn og þar með markvarslan yrði ekki uppá marga fiska. Aron og Ólafur Gústafsson fengu auðveld skot og markverðir Selfoss fengu enga hjálp hjá vörninni. Þegar vörnin stöðvar ekki andstæðinginn í að skora fást ekki hraðupphlaup en það er nákvæmlega það sem FH-ingar náðu að gera. Stilla upp í sterka vörn og fá auðveld mörk úr hraðupphlaupum. Í stöðunni 3-3 skildi leiðir og FH leit ekki til baka eftir það.
Munurinn minnkaði í 26-28
Sebastian breytti vörninni í síðari hálfleik og spilaði 3-2-1 vörn sem virtist duga til þess að hægja á markaskorun FH og skrúfa fyrir hraðaupphlaup þeirra. Þegar 10 mín. voru eftir þá hafði Selfoss minnkað muninn í 26-28 mörk. FH-ingar voru í miklum vandræðum með sóknarleik sinn á þessum tíma en Aron Pálmarson skoraði þá 3 mörk í röð og öll þegar að hendin var kominn upp. Á þessum kalfa brást varnarleikurinn og markvarslan algjörlega. Varnarmenn Selfoss sem höfðu komið FH í þrot bökkuðu undan Aroni þegar hendin var uppi og gerði Aron vonir Selfoss um að fá eitthvað úr þessum leik að engu. Þegar 4 mín. voru eftir þá var enn 3 marka munur en þá lét Atli reka sig útaf fyrir að gagnrýna dómarana og strax í vörninni á eftir fékk Michal líka brottvísun og 2 leikmönnum færri var leikurinn búinn. Að lokum vann FH verðskuldaðan sigur 30-34.
Bestu leikmennirnir
Hjá FH voru Aron, Guðmundur Pedersen og Ólafur Guðmundsson bestir og þá átti Ólafur Gústafsson frábæran kafla í byrjun leiksins.
Hjá Selfoss voru Guðni, Ívar og Michal bestir og þá áttu Mikalonis og Einar Héðinsson frábæran seinni hálfleik í vörn.
Um 300 manns voru á leiknum, minna en oft áður, og studdu áhorfendur vel við bakið á okkar mönnum. Sleginn var kröftugur sambataktur sem skapaði góða stemningu. Vilja leikmenn þakka dyggum stuðningsmönnum sínum fyrir stuðninginn. Nú tekur við vel þegin pása til þess að byggja sig upp aftur fyrir seinni hluta mótsins.
Helsta tölfræði:
Michal 7 mörk úr 8 skotum, 1 stoðsending, 1 varinn bolti, 3 brotin fríköst
Raggi 5 mörk úr 8 skotum, 1 stoðsending, 2 fráköst, 1 varinn bolti, 5 brotin fríköst
Guðni 4 mörk úr 6 skotum, 2 stoðsendingar, 2 fráköst, 1 varinn bolti, 4 brotin fríköst
Atli 4 mörk úr 10 skotum, 6 stoðsendingar, 2 fengin víti, 2 brotin fríköst (byrjaði 0-5 en var svo 4-5 þegar hann kom inná aftur í seinni hálfleik)
Ívar 3 mörk úr 6 skotum, 8 stoðsendingar, 2 fráköst, 1 fengið víti, 1 brotið fríkast
Mikalonis 2 mörk úr 6 skotum, 1 stoðsending, 1 frákast, 1 fengið víti, 4 brotin fríköst
Hörður 2 mörk úr 2 skotum
Gústi 2 mörk úr 2 skotum, 3 brotin fríköst
Kalendauskas 1 mark úr 2 skotum
Einar 4 brotin fríköst, 2 frákast
Gummi 0 mörk úr 1 skoti, 1 brotið fríkast
Halldór varði 7 skot (33%)
Sebastian varði 9 skot (31%)
Það sem stendur þó mest uppúr í tölfræðinni er sú staðreynd að alls var vörnin með 5 brotin fríköst í fyrri hálfleik en alls 22 í seinni hálfleik.
Næsti leikur er 11. janúar á útivelli á móti Haukum 2 og næsti heimaleikur er 18. janúar á móti Þrótti.
Takk fyrir stuðninginn og gleðilega hátríð.
Áfram Selfoss!
