Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.12.2007 | Handboltaakademía

Tap gegn Fram

Á laugardaginn sl. sigraði lið Framara í 3. flokki okkar menn í 91-liðinu. Selfyssingar gerðu sig seka um mörg klaufaleg mistök í leiknum og hefðu í raun átt að vinna leikinn.

Selfyssingar komust í 5-11 er um 20 mínútur voru liðnar af leiknum og spiluðu grimma vörn sem gaf mörg hraðaupphlaup. Í hálfleik stóð 13-15 fyrir okkar menn. Framarar hófu seinni hálfleik mun betur og skoruðu fyrstu sex mörkin og komust þannig í 19-15. Selfossdrengir náðu að minnka í eitt mark en komust ekki nær og lokatölur urðu 29-25 Fram í vil.

Árni Steinn Steinþórsson lék í vörninni en fór illa með mörg dauðafæri, þá varði Sverrir vel á köflum og Orri Davíðsson lék mjög vel og skoruðu átta góð mörk.

Næsti leikur þessa liðs er í janúar gegn hinu feykisterka liði FH og verður eflaust hörkuleikur. FH er með geysilega gott lið og yrði ekki slæmt að byrja nýtt ár á því að vinna þá.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta