Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

29.12.2007 | Handbolti

U18 landsliðið leikur til úrslita á Hela Cup

Fyrr í dag vann landslið Íslands, skipað leikmönnum fæddum 1990 og síðar (U18), Þjóðverja með eins marks mun, 34-33 eftir að þeir þýsku hafi haft yfir í hálfleik 20-15. Frábært hjá strákunum að vera komnir í úrslitaleikinn sem verður við Frakka í kvöld.

Í liði Íslands eru fjórir leikmenn frá Selfossi, þeir Bjarki Már Elísson, Einar Héðinsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Ragnar Jóhannsson. Liðið þjálfar Einar Guðmundsson, sem er öllum íþróttaáhugamönnum á Suðurlandi að góðum kunnur, enda skilað frábæru starfi í þágu handboltans á Selfossi.

Strákarnir töpuðu einmitt fyrir Frökkum í gær frekar illa og sáu aldrei til sólar í leiknum. Frakkar hafa á að skipa geysilega sterku liði, hvort sem litið er á tæknilega getu eða líkamlega.

Strákarnir hafa unnið á mótinu til þessa:
Þýskaland 34-33. Guðmundur með átta mörk og Ragnar sex.
Saarland 32-26 og svo
Pólverja í fyrsta leik 36-32 þar sem Raggi setti sjö mörk og Gummi sex og svo tapað illa fyrir
Frakklandi 34-19.

Vonandi ná strákarnir að hefna fyrir það tap í kvöld.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta