Selfoss og Grótta mættust á Selfossi á Föstudaginn var. Selfoss og Grótta mætust á föstudaginn var í 1 deild karla á Selfossi Liðin voru frekar jöfn þótt að Selfyssingar væru alltaf einu skrefi á undan.Staðan í hálfleik var 15-12 Í seinni hálfleik náðu leikmenn Gróttu aðeins að klóra í bakkan en allt kom fyrir ekki og Selfyssingar sigruðu leikinn 32-30
Guðmundur Árni Sigfússon þjálfari Gróttu hafði þetta að segja um leikinn :
Hvernig fannst þér leikurinn svona í heildinni?Ja hann var ekki nógu góður að okkar hálfu það er allveg ljóst, mér fannst allveg ótrúlegt að við hefðum verið í séns hérna í lokinn.
Hvað heldurðu að hafi farið úrskeiðis í ykkar leik?Við vorum slakir sóknarlega stóran hluta af leiknum og langt síðan við höfum fengið svona mörg mörk á okkur.
Hvað er svo framhaldið hjá ykkur? Ætliði bara að stríða liðunum eða á að fara að stela einhverjum stigum? Við vissum að við yrðum lengi í gang í vetur en það bara sýnir sig að við höfum allveg fullt erindi í þessi lið svo það er bara að taka næsta skref og vinna þessi lið.
Atli Kristinsson leikmaður Selfoss hafði þetta að segja :
Jæja Atli hvernig fannst þér leikurinn? Jaaaa, þetta var lélegt tempó og þetta hefði mátt vera betra en sigur er sigur.
Ósáttur með þína framistöðu? Nei nei, alls ekki, sáttur með mína, hefði mátt gera aðeins betur, örlítið.
Nú vilja menn meina að þú sért að koma til baka eftir erfiðan tíma eitthvað til í því? Já klárlega, önnur umferðin var mjög léleg hjá mér en ég er kominn aftur
Þú varst eitthvað að fórna höndum í garð dómara eitthvað ósáttur með þá?Nei alls ekki, þetta er bara í hita leiksins, þeir stóðu sig vel. Góðir dómarar
Hvað er svo framhaldið hjá Selfoss er stefnan sett upp?Já er það ekki? Stefnan er sett upp.
Markaskorarar Selfoss
Ragnar Jóhannsson 11 Mörk
Atli Kristinsson 7 Mörk
Ívar Grétarsson 3 Mörk
Gústaf Lilliendahl 3 Mörk
Guðni Ingvarsson 3 Mörk
Mikal Dostalik 2 Mörk
Guðmundur Árni Ólafsson 1 Mark
Ramunas Mikalonis 1 Mark
Ramunas Kalendauskas 1 Mark
Markaskorarar Gróttu
Davíð Hlöðversson 7 Mörk
Þorleifur Árni Björnsson 6 Mörk
Jökull Finnbogason 5 Mörk
Óðinn Stefánsson 5 Mörk
Jónas Guðbransson 3 Mörk
Brynjar Árnason 2 Mörk
Kristján Geir Þorsteinsson 2 Mörk.
