Það voru Selfyssingar sem byrjuðu betur og eftir 15 mín. var staðan orðin 12 - 7 fyrir heimamenn. Mestu munaði þar um að hraðupphlaup okkar manna gengu vel upp. Þessi munur hélst svo fram að hálfleik en staðan þá var 22 - 17. Í síðari hálfleik gáfu FH-ingar smám saman eftir og lönduðu okkar strákar góðum sigri 47 - 37 eins og áður hefur verið nefnt.
Þess má geta að í lið FH vantaði Aron og Sigga (sem tók út leikbann) og munaði auðvitað talsvert um þá. Bestir í liði FH að þessu sinni voru Björn (11 mörk), Eggert (8 mörk) og Halldór (7 mörk). Aðrir markaskorarar FH voru Þorkell með 6 mörk og Ólafur með 5 mörk.
Hjá Selfoss náðu allir burðarásar sér vel á strik að þessu sinni og þá var sérstaklega gaman að sjá Sigga loksins stíga upp eftir smá lægð uppá síðakastið. Helsta tölfræði okkar manna var..
Gummi með 12 mörk úr 15 skotum, 2 stoðsendingar
Einar með 11 mörk úr 13 skotum
Raggi með 8 mörk úr 11 skotum, 6 stoðsendingar
Bjarki með 6 mörk úr 7 skotum, 1 stoðsending
Siggi með 6 mörk úr 9 skotum, 4 stoðsendingar
Halli með 1 mark úr 1 skoti, 11 stoðsendingar
Hemmi með 1 mark úr 1 skoti
Guðbjörn með 1 mark úr 1 skoti
Sissi með 1 mark úr 3 skotum
Helgi varði 16 skot (30%)
Næsti leikur 90 liðsins er gegn 91 liðinu og eru allir hvattir til að mæta á þann stórviðburð og hvetja Selfoss til dáða þegar Selfossliðin mætast innbyrðis. Leikurinn er á sunnudaginn 10 febrúar kl. 19:30. Í millitíðinni spilar 91 liðið við FH2 á miðvikudag á útivelli.
Áfram Selfoss
