Á miðvikudag lék Selfoss 91 gegn FH 91. Þetta eru líklega tvö bestu lið landsins sem skipuð eru leikmönnum fæddum 1991 og því mátti búast við hörkuleik. Bæði lið leika nokkuð öflugan varnarleik en mjög ósvipaðan engu að síður. FH grimma 3-2-1 vörn en Selfyssingar öfluga 6-0 vörn.
Leikurinn var í járnum allan tímann en Selfyssingar leiddu mest allan fyrri hálfleikinn þó. Mest með þremur mörkum 7-4, þá hættu okkar menn að leika agað og skynsamlega og tóku að missa boltann í gríð og erg til FH-inga sem gengu á lagið og breyttu stöðunni í 7-8 sér í vil. Selfsoss komst þó aftur yfir og var staðan 11-9 er ein mínúta var eftir af fyrri hálfleik. Síðustu tvö mörk hálfleiksins voru FH-inga og staðan því 11-11 í leikhléi.
FH-ingar voru ákveðnari framan af seinni hálfleik en aldrei gáfust okkar menn upp. Er um 12 mínútur voru eftir af leiknum var staðan 19-15 þá kom góður kafli hjá Selfyssingum og náðu þeir að jafna 21-21. FH skoraði sigurmarkið 20 sekúndum fyrir leikslok eftir, það mark kom eftir vægast sagt langa sókn þeirra en okkar menn gleymdu sér eitt augnablik. Selfyssingar náðu ekki að skora úr síðustu sókninni og náðu þar með ekki að jafna. Lokatölur því 22-21 fyrir FH.
Grátlegt er að ná ekki a.m.k. einu stigi í svona leik en það áttu strákarnir svo sannarlega skilið. Vörnin í leiknum var frábær og fyrir aftan hana var Sverrir sem varði 21 skot í leiknum. Orri Davíðsson skoraði sex mörk í leiknum og Örn Þrastarson fimm. Þór Davíðsson og Matthías Halldórsson áttu einnig góðan leik og þá sér í lagi varnarlega. Mun meir meira býr í þeim Andra Má og Árna Steini en þeir sýndu í leiknum.
