6. flokkur kvenna í handbolta (stelpur fæddar 1996 og 1997) tóku þátt í sterku deildarbikarbikarmóti sem haldið var af Fylki í Reykjavík. Stelpurnar voru í mjög sterkum riðli og aðeins 2 efstu liðin komust áfram.
Á Laugardeginum var spilað í riðlinum og unnu stelpurnar alla leikina í riðlinum. Stelpurnar sigruðu því riðilinn og lenntu gegn Gróttu á sunnudeginum í undanúrslitum mótsins . Sá leikur var æsispennandi en þær unnu þann leik 9-8 og því var ljóst að þær myndu mæta ÍR í úrslitum mótsins en þær höfðu unnið ÍR deginum áður 6-5. Stelpurnar mættu mjög einbeittar í úrslitaleikinn en því miður tókst þeim ekki að vinna í þetta skipti og töpuðu 6-7. Silfrið var því staðreynd eftir mikla baráttu í úrslitaleiknum.
Stelpurnar eru búnar að taka miklum framförum í vetur og þess má til gamans geta að Thelma Björk Einarsdóttir skoraði 42 mörk af 55 mörkum liðsins og er yfirburðarmanneskja í sínum aldursflokki á landinu. Harpa Sólveig Brynjarsdóttir stóð sig eins og hetja í markinu en hún varði 48 skot (Næstum 7 skot í leik) og skoraði þrjú mörk. Það er því greinilegt að við getum verið stolt af stelpunum og að framtíðin er björt í kvennaboltanum.
