Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

11.2.2008 | Handboltaakademía

Selfoss vann Selfoss

Í gærkvöld fór fram fyrri hálfleik 3.flokks liða Selfoss í handbolta í 1. deild. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína á völlinn og létu þeir vel í sér heyra. Þessi tvö lið eru skipuð leikmönnum fæddum 1990 og 1991.

Leikurinn var í járnum mest allan fyrri hálfleik, 90-liðið var engu að síður ávallt skrefi á undan þó að 91-liðið hafi komist yfir 10-9 og 11-10. í leikhléi var staðan 16-23 fyrir eldri strákana þar sem þeir gerðu fimm síðustu mörk hálfleiksins. Full mikill munur miðað við hvernig fyrri hálfleikur spilaðist. Árni Steinn Steinþórsson gerði 10 mörk í fyrri hálfleik og fátt virtist geta stöðvað hann.

Yngri drengirnir hófu síðari hálfleik með miklum látum og skoruðu sex fyrstu mörk hálfleiksins og var staðan skyndilega orðin 22-23 eldra liðinu í hag. Á þessum kafla fór Örn Þrastarson mikinn og komst yngra liðið því aftur inn í leikinn. Þeir fengu svo tækifæri á að jafna leikinn en fóru illa að ráði sínu og komst eldra liðið aftur yfir tvö mörk og jókst sá munur jafnt og þétt á nýjan leik. Munurinn varð mestur níu mörk en lokatölur urðu 34-42 Selfoss-90 í vil.

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið besti leikur Selfoss-91 það sem af er tímabilinu og hægt er að fullyrða að með þessari frammistöðu væri liðið í allt annarri stöðu en það er í dag væri það búið að leika allt tímabilið líkt og í gær. Þeir voru aftur á móti að leika gegn besta liði landsins sem Selfoss-90 er og því dugði þessi frammistaða ekki lengra en raun bar vitni.

Bestu menn 91-liðsins voru þeir þeir Árni Steinn sem skoraði 15 mörk í leiknum og Matthías Halldórsson sem setti sjö. Tvíburarnir Orri og Þór Davíðssynir léku einnig mjög vel sem og var þetta besti leikur Arnar Þrastarsonar á tímabilinu. Sverrir átti fína spretti í leiknum inn á milli og Andri Már kom vel til baka í seinni hálfleik eftir slakan fyrri. Annars er hægt að hrósa öllum leikmönnum fyrir baráttu, eljusemi og vilja í leiknum.

90-liðið lék vel og er eins og flestir vita vel mannað. Ragnar Jóhannsson skoraði 10 falleg mörk og Einar Héðinsson skoraði níu mörk af línunni og var illviðráðanlegur. Guðmundur Árni Ólafsson átti góða spretti og skoraði 10 mörk. Halldór skoraði fimm mörk og átti fjölmargar stoðsendingar og Bjarki var eitraður í horninu.

Markarskorarar Selfoss-91:

Árni Steinn 15

Matthías 7

Örn 4

Orri 3

Andri M 3

Þór Davíðsson 1 (fimm fiskuð víti)

Daníel Jónsson 1

Sverrir varði 14 skot og Erlingur tvö

Markaskor Selfoss-90:

Ragnar 10

Guðmundur 10

Einar 9

Bjarki 7

Halldór 5

Sigurður 1

Helgi varði 24 skot


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta