Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

11.2.2008 | Handboltaakademía

2 fl. vinnur Aftureldingu á heimavelli

2 fl. hefur verið að spila fínan handbolta í allan vetur en oftar en ekki uppskorið minna úr leikjunum en þeir hafa átt skilið og allt of oft tapað naumt á lokasprettinum. Það var bara tímaspursmál hvenær þeir næðu að klára einn af þessum leikjum með sigri.

Leikurinn var í járnum til að byrja með og það var ekki fyrr en um miðjan fyrri hálfleik sem það fór að skilja á milli liðanna. Sjóli byrjaði leikinn eins og berserkur en hann skoraði 6 fyrstu mörk Selfoss og það úr 6 skotum og átti báðar stoðsendingarnar sem skiluðu 4 marka forystu um miðjan fyrri hálfleik 8 - 4.  Sóknarleikurinn hökti aðiens þegar UMFA klippti Sjóla út en liðið fann fljótlega taktinn gegn því og staðan í hálfleik 19 - 13 fyrir Selfoss.

Seinni hálfleikur byrjaði með því að Ástgeir lokaði markinu og varði hvert dauðafærið á fætur öðru á meðan að liðsfélagar hans voru en að átta sig á því að leikurinn var hafinn að nýju. Þar með virtist allur vindur úr UMFA mönnum og mestur varð munurinn 11 í seinni háflleiknum en UMFA tókst minnka muninn í 8 mörk í lokin. Langþráður sigur 34 - 26 sem var vel fagnað í leikslok.

Bestir í liði UMFA voru Ungverjarnir tveir. Oliver Kiss varði oft mjög vel í markinu og Attila Valaczkai sem skoraði 8 mörk. Aðrir markaskorarar UMFA voru:
Jón Andri 5 mörk
Róbert 5 mörk
Þrándur 4 mörk
Viðar 2 mörk
Ásmundur 2 mörk


Hjá Selfoss komu allir leikmenn liðsins við sögu í leiknum og var skipt frekar ört inná allan leikinn og breiddin því nýtt vel. Liðsheildin skilaði sínu í dag og menn sem komu inná tóku upp þráðinn þar sem fyrri maður hætti. Að sjálfsögðu munar mikið um það að Eyþór og Steinar eru farnir að ná sér á strik eftir langvarandi meiðsli og loksins er nú Komin ógn af báðum skyttustöðunum á vellinum.

Helsta tölfræði Selfoss:
Sjóli 9 mörk úr 15 skotum, 3 stoðsendingar, 3 fráköst, 10 brotin fríköst
Gústi 5 mörk úr 7 skotum, 4 brotin fríköst
Eyþór 4 mörk úr 6 skotum, 1 stoðsending, 1 frákast, 7 brotin fríköst
Leifur 4 mörk úr 5 skotum, 2 fráköst, 5 brotin fríköst
Helgi 3 mörk úr 5 skotum, 2 stoðsendingar, 1 brotið fríkast
Steinar 2 mörk úr 4 skotum, 2 stoðsendingar, 3 fráköst, 3 brotin fríköst
Sæli 2 mörk úr 4 skotum, 1 frákast, 2 brotin fríköst
Kúldi 2 mörk úr 3 skotum, 1 stoðsending, 2 fráköst, 4 brotin fríköst
Atli Hjörvar 2 mörk úr 3 skotum, 1 fengið víti, 3 brotin fríköst
Binni Dóa 1 mark úr 1 skoti, 2 brotin fríköst

Ástgeir varði 18 skot fékk 22 mörk á sig (45%)

Ísleifur varði 5 skot fékk á sig 4 mörk (55%) og þar af varði hann 3 af 5 vítum sem tekin voru á hann.


Þá má fagna því sérstaklega að Helgi Héðinsson er byrjaður að spila aftur eftir 7 mánaða löng og erfið meiðsli. Það munar miklu fyrir bæði 2 fl. og m.fl. að hann sé orðinn leikhæfur og það er því aldrei að vita nema 2 flokkur nái kannski að stilla upp sínu sterkasta liði  sinni í vetur áður en tímabilið klárast.


Áfram Selfoss



Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta