Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.2.2008 | Handboltaakademía

Víkingar engin hindrun fyrir Selfyssinga

Það var toppslagur í 1.karla í kvöld, þegar Selfyssingar tóku á móti Víking. Leikurinn endaði 34-28.

Leikurinn fór hægt af stað og var jafnræði með liðunum framan af. Síðan fóru Selfyssingar að síga hægt og bítandi fram úr og leiddu þeir í hálfleik 14-10. Mikið líf var í heimamönnum og voru þeir einfaldlega sterkari og betri á öllum sviðum handboltans. Það var eins og bikarleikurinn í vikunni sæti ennþá í Víkingunum og náðu þeir aldrei að spila sinn handbolta.

Í seinni hálfleik var það sama uppá teningnum og leiddu og heimamenn með 3-5 allan leikinn. Hin bráð efnilegi Selfyssingur, Ragnar Jóhannsson lék við hvern sinn fingur og setti alls 13 mörk í leiknum og nánast öll fyrir punktalínu. Ekki má gleyma Birki Fannari Bragasyni sem stóð vaktina frábærlega í marki Selfoss. Hjá Víkingunum var Sverrir Hermannsson að leika hvað best en var lítið um markvörslu hjá Víkingum.

Þessi leikur setur Selfoss liðið uppí 3.sætið og setur Víking í fjórða. En eru þessi lið að berjast um 3. sætið eins og er.

Markarskorarar Selfoss: Ragnar Jóhannsson 13,Mikal Dostalik 4,Guðni Ingvarsson4, Ramunas Kalendauskas 4, Ramunas Mikalonis 2, Atli Kristinsson 2, Ívar Grétarsson1, Gústaf Lilliendhal 2, Hörður Bjarnason 1, Guðmundur Árni Ólafsson 1

Áhorfendur voru 328

Við fengum hinn bráðefnilega Ragnar Jóhannsson í létt spjall eftir leik Selfoss og Víkings.

Jæja Ragnar nú skoraðir þú þrettan mörk og stóðst við það sem þú sagðir?Jájá

Markmennirnir áttu erfitt með þig? Já það gekk allt upp, þetta var auðvelt. Þetta var eins og að drekka vatn.

Nú sagði Reynir Þór að hann þyrfti ekki að óttast neinn Selfyssing er þetta ekki góð ástæða til að hann þurfi að óttast þig? Reynir Þór hefði betur átt að óttast Atla Kristinsson

Útaf hverju? Bara hann hefði betur átt að gera það, hann veit það sjálfur.

Hvernig fannst þér leikurinn í heildinni? Bara mjög góður, dómararnir voru mjög góður og við spiluðum góðan varnarleik.

Enginn heimadómgæsla? Enginn heimadómgæsla

Nú heyri ég uppí stúku að þú sért að banka á dyrnar á A-landsliðinu er eitthvað til í því? Nei, ekkert til í því.

Hver var bestur hjá ykkur í þessum leik? Ég, og Birkir Fannar


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta