Leikurinn var jafn alveg fram að lokum fyrri hálfleiks og skiptust liðin á því að hafa forystuna á þeim tíma. Á síðustu 5 mín. fyrri hálfleiks breyttu Selfyssingar stöðunni úr 10 - 9 í 14 - 10 sem voru hálfleikstölur. Síðari hálfleikur spilaðist svo þannig að þessi 4 marka munur hélst þar til að 15 mín. voru búnar af síðari hálfleik en þá jók Selfoss forskotið í 6 mörk, 24 - 18 og hélst sá munur svo til leiksloka. Lokatölur eins og áður sagði voru 34 - 28 og góður en verðskuldaður sigur heimamanna staðreynd.
Eflaust hefur leikurinn við Val eitthvað setið í Víkingi en hjá þeim létu Sverrir Hermannsson og Þórir Júlíusson mest að sér kveða í leiknum auk þess sem Davíð Ólafsson spilaði góða vörn. Þá byrjaði Erlingur Reyr leikinn vel í markinu en náði ekki að fylgja því eftir.
Í Selfossliðinu spiluðu margir vel að þessu sinni en bæði Ragnar og Birkir voru þó menn leiksins. Ragnar var óstöðvandi í sókninni og Birkir hreinlega lokaði markinu í þessum leik. Varnarleikur, hraðupphlaup og sóknarleikur gekk upp í þessum leik og með góðum stuðningi áhorfenda var það aldrei spurning þegar það leið á leikinn hvoru megin sigurinn myndi lenda.
Helsta tölfræði leikmanna Selfoss:
Raggi 13 mörk úr 17 skotum, 4 stoðsendingar, 1 frákast, 1 varinn bolti, 5 brotin fríköst
Guðni 4 mörk úr 6 skotum, 1 stoðsending, 2 fráköst, 4 brotin fríköst
Michal 4 mörk úr 5 skotum, 1 stoðsending, 1 fengið víti, 5 brotin fríköst
Kalendauskas 4 mörk úr 6 skotum, 2 stoðsendingar, 4 brotin fríköst
Atli 2 mörk úr 9 skotum, 5 stoðsendingar, 3 fráköst, 2 brotin fríköst
Mikalonis 2 mörk úr 2 skotum, 2 stoðsendingar, 1 frákast, 2 varðir boltar, 6 brotin fríköst
Gústi 2 mörk úr 2 skotum, 1 frákast, 4 brotin fríköst
Hörður 1 mark úr 1 skoti, 1 stoðsending, 1 brotið fríkast
Ívar 1 mark úr 2 skotum, 9 stoðsendingar, 3 brotin fríköst
Gummi 1 mark úr 5 skotum, 1 stoðsending, 1 stolin bolti, 4 brotin fríköst
Birkir varði 23 skot þar af 2 víti (46%)
Langt er í næsta heimaleik liðsins þar sem liðið spilar nú við toppliðin tvö á útivelli í næstu tveimur umferðunum þannig að Selfyssingar verða að bíða þar til 6. mars með að sjá liðið spila aftur.
Áfram Selfoss
