..að hann fékk 2 mjög slæm höfuðhögg í leiknum. Í fyrra atvikinu þá fær hann hendi varnarmanns beint í andlitið með það miklu afli að hnakkinn á honum skall þar að auki í gólfið þegar hann féll. Seinni atvikið var rétt um miðjan seinni hálfleikinn en þá varð hann fyrir því óláni að fá á öxl varnarmanns undir hökuna þegar hann reyndi undirskot. Eftir það högg lá hann eftir en hélt áfram að spila en þegar hann var svo stuttu seinna tekinn út af kom í ljós að hann man ekki neitt eftir deginum og var í raun alveg út úr heiminum eins það er kallað. Farið var með hann beint upp á spítala þar sem hann fékk aðhlynningu. Hann fékk að fara heim til sín síðar um kvöldið en var þó undir eftirliti alla nóttina. Vonandi nær hann bata sem fyrst og óskum við honum alls hins besta á næstu dögum og vikum.
