Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

20.2.2008 | Handboltaakademía

"Ef ég hefði markmanninn ykkar þá yrðum við heimsmeistarar"

Zoran Ivic er annar tveggja landsliðsþjálfara serbneska karlalandsliðsins sem tapaði naumt í tveimur viðureignum við Ísland um að komast á Evrópumótið í Noregi. Hann hefur jafnframt stýrt yngri karlalandsliðunum í talsverðan tíma.  Serbar sem urðu heimsmeistarar í U-18 fyrir nokkrum árum eru á meðal bestu þjóða í heiminum í dag í drengja- og unglingaþjálfun. Því til staðfestingar þá eru mjög margir ungir leikmenn frá þeim þegar komnir á samninga hjá nokkrum af sterkustu klúbbum Evrópu í Þýskalandi, Spáni og Frakklandi. Það var því mikill happafengur fyrir handboltaakademíuna að fá Ivic hingað en hann er aðalhugmyndasmiðurinn á bakvið þessa uppbyggingu í Serbíu. Hann skoðaði okkar starf og ræddi það síðan á málefnalegan og gagnrýnin hátt við forráðamenn okkar. 

Ivic fékk að sjá æfingar í handboltaakademíunni, Mfl., 3. fl., 4. fl. ásamt stuttu innliti hjá 7. fl. og 6. fl. Í meginatriðum þá leist honum gríðarlega vel á okkar starf og æfingaaðferðir. Hann sagði að við værum á góðri leið, bæði í handboltaakademíunni og yngri flokkunum. Hann var ófeiminn við að benda á atriði sem honum fannst að mætti bæta við inní prógramið til að gera þetta enn betra að hans mati.  Þá stýrði hann æfingu hjá 3. fl. og handboltaakademíunni og sýndi strákunum nokkrar nýjungar sem hann segir að séu að ryðja sér meira til rúms í Evrópu núna og verði það nýjasta nýtt á næsu árum. Loks þá ræddi hann mikið við Sebastian yfirþjálfara handboltaakademíunnar og Bryndísi styrktarþjálfara og loks lét hann Sebastian síðan hafa talsvert af gögnum. Bækur, geisladisk, ritgerðir og USB lykil allt stútfullt af upplýsingum.

Hann horfði á þrjá leiki á meðan hann var hérna. Tvo leiki í 3. fl. og einn leik í Mfl. Eftir að hafa farið í gegnum allan pakkann sagði hann m.a. annars að hér væri mikið af efnilegum drengjum í 2. fl, 3. fl. og 4. fl. Það eina sem þyrfti væri að kára að móta þessa hæfileika og til þess þyrfti bara þolinmæði. Það vakti líka sérstaka athygli hjá honum hvað strákarnir voru tilbúnir að hlusta og leggja sig fram.

Athyglisverðasta athugasemdin hans kom þó án efa eftir leik M.fl. á móti Víkingi en hann sagði þá "Ef ég hefði markmanninn ykkar þá yrðum við heimsmeistarar í U-20". Þarna er hann að tala um Birki Fannar Bragason sem átti frábæran leik á móti Víkingi og varði skot í öllum regnbogans litum. En þess ber að geta að hann er þjálfari bæði U-20 og U-18 hjá Serbíu um þessar mundir. Það sem er ennþá athyglisverðara er að Birkir er einungis 6 val í landslið Íslands í sínum aldursflokki. Hann ætti kannski bara að fara að huga að því að sækja um serbneskan passa : )


Handknattleiksdeildin þakkar Zoran Ivic fyrir frábæra og lærdómsríka heimsókn.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta