Við tókum púlsin á Arnari Gunnarssyni leikmanni Selfoss eða Adda Púng eins og hann er oft kallaður
Fullt nafn: Arnar Gunnarsson
Aldur: 29
Giftur/sambúð? hvorugt
Börn: Nei
Hvað gerirðu? Kennari
Ánægður og hvers vegna? Er alltaf styggur. Finnst það betra þannig.
Varstu góður unglingur? Var til fyrirmyndar í alla staði.
Hverjir eru þínir helstu kostir sem persóna? Geðgóður, þolinmóður og umburðarlyndur
En helstu gallar sem persóna? Tuða að ég held aldrei!
Heldurðu að þú sért eða verðir góður maki og hvers vegna? Ég þyki ákaflega óður, er vel vaxinn, töff og tískulögga mikil.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn
Uppáhaldsmatur? Lambakjöt
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki? Nei
Hvaða liði myndir þú vilja spila með? Ekki hugmynd. Er hvort eð er að hætta í vor því skiptir þetta litlu.
Hvaða liði mundir þú aldrei spila með? Ekki hugmynd. Er hvort eð er að hætta í vor því skiptir þetta litlu.
Erfiðasti andstæðingurinn? Dóri Sigfúsar
Besti samherjinn? Dóri Sigfúsar, Selfossliðið og Þórsliðin 1996-2003.
Ofmetnasti karla leikmaðurinn hér á landi? Margir tilkallaðir. Þar sem ég þekktur fyrir mikil líbóheit og að skapa aldrei vesen þar sem ég er og kýs því að gefa það ekki upp.
Vanmetnasti karla leikmaðurinn hér á landi? Markmaður og spilar hann á Selfossi. Hann virðist samt ekki mega vera valinn í landslið Íslands. Svo er Basti vanmetinn sem miðjumaður.
Sætasti sigurinn? Október 2002 gegn KA á heimavelli þeirra við Lundarskóla.
Mestu vonbrigði? Öll töpin sem ég hef þurft að þola á ferlinum.
Besti vinur þinn úr handboltanum? Það eru margir. Bæði úr Þór og KA sem og Selfyssingar. Þeir sem ég hitti og tala mest við í dag eru sennilega bræður mínir, Gestur, Haffi, Höddi Bjarnar (ekki Bjarna), Batti, Baldur, Einar Guðmunds, Einar pylsa, Diddi Steinríkur og einhverjir fleiri sem ég kannski er að gleyma. Afsakið.
Uppáhalds erlent handboltalið? HSV Usedom
Uppáhalds handboltamaður? Jan Olaf Immel.
Besti íslenski handboltamaður í gegnum tíðina? Alfreð Gíslason
Efnilegasti handboltamaður á landinu? Hann spilar með Selfossi
Fallegasta handboltakonan? Margar sem gera harða atlögu að þessum titli.
Grófasti leikmaður deildarinnar? Bamruk er hættur að spila.
Besti íþróttafréttamaðurinn? Er hann til?
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn? Ónefndir þulir á ónefndu handboltamóti í janúar
Hvernig gemsa áttu? Nokia eða Siemens, man það ekki.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Íþróttir og allt efni þar sem Sylvester Stallone kemur nálægt. Sly er besta og mesta persóna í sögu mannskyns. Persónutöfrar og almennur þokki er það sem einkennir þennan langbesta leikara í heimi. Ótrúlegur maður og Rambo 4 er ein besta mynd sögunnar.
Besta bíómyndin? Allar myndir með Sly.
Hvaða tónlist hlustar þú á? Hart rokk, helst breskt. Iron Maiden er besta hljómsveit sögunnar. Á eftir þeim koma hljómsveitir eins og: UFO, Budgie, Whitesnake, Rainbow, Thunder, Led Zeppelin, Jethro Tull, Uriah Heep, Deep Purple, Pink Floyd.
Og svo: Cradle of filth, Type O Negative, In Flames, Dimmu Borgir, Slayer, Anthrax, Pantera, Children of Bodom, Machine Head, AC/DC, Judas Priest, Guns n´Roses, Metallica, Thunder, Dio. Queen, Black Label Society . Corrosion Of Conformity.
HAM, RASS og Dr. Spock og Óttar Proppé fær sæti í heiðursstúku!
Sem sagt rólega og ljúfa tónlist í mín eyru takk.
Uppáhaldsútvarpsstöð? Rás 1 og 2
Uppáhalds vefsíða? www.gomma.com
Hvaða strákur í liðinu er heitastur? Eyþór lögga held ég að hljóti að vera. Hann segir það a.m.k. eins er Atli Kristins er líka nokkuð viss um eigið ágæti.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur tengt handboltanum? Það væri hægt að segja frá mörgu atvikum en oft eru sögu ekki fyndnar nema menn hafi verið á staðnum eða þá þekki viðkomandi. Man þó eina í fljótu bragði um hann Axel Stefánsson fyrrum þjálfara minn í Þór og núverandi þjálfara Elverum í Noregi. Leikmenn og þjálfari Þórsliðsins voru á fundi allir saman en biðu eftir einum leikmanni, Herði Flóka Ólafssyni. Er Axel spurði okkur leikmenn hvar Flóki væri svaraði ég því til að honum seinkaði þar sem hann kæmi á tveimur jafnfljótum. Axel þykir íslenskufræðingur hinn mesti og svaraði um hæl: Nú það er bara gamla góða hjólið.
Ef þú mættir koma með eina ábendingu til dómara, hver mundi hún vera? Þetta eru allt toppmenn, en þeir mættu róa sig sumir hvað tilfinningar varðar og vera minna hörundsárir.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Horfa á.
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Vinnie Jones og Alfreð Gíslason.
Áttu önnur áhugmál fyrir utan handboltan og hver þá? Tónlist, sagnfræði (WW2), útivera og margt fleira.
Ertu trúaður? Trúaður? Þá á gvuði, drauga eða miðla? Nei alls ekki, fjarri því. Miðla tel ég pretta fólk og plokka af því peninga. Mín skoðun á trúmálum er þessi: Hver sá sem aðhyllist ekki trúarbrögð sér hvurslags rugl er í gangi!
Hver skapaði heiminn? Sly
Hver er uppáhalds skemmtistaðurinn þinn? Freyvangur í Eyjafjarðarsveit
Hver er uppáhalds matsölustaðurinn þinn? Greifinn
Hvað er rómó? Mynd með Sly í tækinu og allt í botni
Hvað er sexý? Inniskór
Er þú horfir á handboltaleiki hjá konum ertu þá að horfa á leikinn vegna handboltans eða stelpnanna?
Fer eftir því hvaða flokkur er að spila.
Hvernig reynir þú við þitt kyn eða hitt kynið? Þarf ekkert að reyna, það er nóg fyrir mig að mæta á svæðið.
Ef þú þyrftir að velja á milli að horfa á góðan handboltaleik, borða góðan mat, versla eða njóta ásta hvað mundi það verða?
Ég myndi velja allt og í þessari röð. Nema ég sleppti því að versla.
Ertu ástfangin? Nei
Hverjir eru almennt helstu kostir kvenfólks? Stjórnsamar, frekar og ákveðnar.
Hverjir eru almennt helstu gallar kvennfólks? Stjórnsamar, frekar og ákveðnar.
Fallegasti kvennmaður sem þú hefur séð? Inga eða Íris
Hvaða persónu mundir þú helst vilja hitta? Sly
Merkilegasta persóna sem uppi hefur verið? Sly
Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni og þá hverju? Hef mín persónulegu markmið.
Ertu góður i handbolta? Óstjórnlega já.
Ferðu á rakarastofu? Er til eitthvað svoleiðis?
Hvað dreymir þig um? Álfa og tröll.
Án hvers gætir þú ekki lifað? Ekki háður neinum hlut.
Án hvers gætir þú lifað? Alls nema drykkjar og matar.
Hvað dettur þér í hug er þú heyrir:
Handbolti? Skemmtun
Selfoss? Fudge
Nakinn karlmaður? Full monty
Nakinn kvennmaður? Já hún líka
Vallaskóli? Vinna
Basti? Samsæriskenningar
Atli Kristinsson? Strípur, gel, brúnka og ááááiii!
Peningar? Hinir geysilega réttlátu og réttsýnu íslensku bankar.
Ást? Glas
Kynlíf? Líf tveggja kynja
