Samið um bíla með þriggja punkta öryggisbeltum
Í vikunni var undirritaður samningur milli Handboltaakademíu Umf. Selfoss og Guðmundar Tyrfingssonar ehf. um samstarf næstu 4 árin. Í samningnum er samið sérstaklega um notkun á bifreiðum með þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum. Á samningstímanum mun Guðmundur Tyrfingsson ehf. einnig styrkja akademíuna m.a. í formi auglýsingakaupa.
Handboltaakademían stendur fyrir öflugu forvarnarstafi undir einkunnarorðunum Forvarnir – Hollusta – Árangur. Handknattleiksakademína er ætluð ungu afreksfólki á aldrinum 16-19 ára sem vilja vinna að því að efla og bæta íþrótt sína. Lagt er upp með að skapa tækifæri til að æfa og keppa við bestu aðstæður og fá íþróttaiðkun sína metna í námi sínu við FSu. Mikil áhersla er á heilbrigt líferni og neyslu vímuefna hvers konar er algerlega hafnað. Forsvarsmenn Guðmundar Tyrfingssonar ehf. telja þetta öfluga forvarnarstarf til fyrirmyndar og lýsa ánægju sinni með að fá að vinna með Handboltaakademíunni næstu árin og að geta með samningi þessum lagt þessu góða málefni lið. Að sama skapi er mjög ánægjulegt að forsvarsmen akademíunnar skuli sérstaklega leita eftir að semja um bifreiðar með þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum fyrir sitt fólk.
