Um nýliðna helgi fór fram annað af tveim deildarmótum 5. flokks kvenna í handbolta. Mótið var háð í Mosfellsbæ og fór það mjög vel fram. A-liðið var skipað þeim: Kristínu, Kristrúnu, Hrafnhildi Hönnu, Alexöndru Bíu, Thelmu Björk, Díönu, Esther og Birtu. Stóð liðið sig frábærlega og sigraði alla sína leiki og þar með sína deild. B-liðið var skipað þeim: Auði, Auði, Gerði, Þuríði, Ágústu, Andreu Ýr, Huldu Dís og Hörpu Sólveigu. Liðið vann tvo af fimm leikjum sínum og héldu sæti sínu í 2. deild.

Á Laugardeginum spiluðu A-liðs stelpurnar við Val. Stelpurnar byrjuðu leikinn ekki nógu vel og náðu sér aldrei almennilega á strik, en sigruðu þó leikinn 9-7. Kristrún Steinþórs. skoraði 4 mörk úr 4 skotum.
Næst mættu þær Haukum, en Haukar voru erfiðustu andstæðingar liðsins. Allt annar bragur var á okkar stelpum og vannst leikurinn 9-8. Kristrún Steinþórsdóttir skoraði 5 mörk og Thelma Björk skoraði 4. Birta varði 13 skot í markinu.
Daginn eftir spiluðu stelpurnar fyrst við KA. Óhætt er að segja að Selfoss hafi haft betur á öllum sviðum í þeim leik sem endaði 12-5. Hrafnhildur Hanna skoraði 5 mörk og Díana Sigmars 3. Hún stóð sig einnig mjög vel í vörn, en með 11 brotin fríköst sem verður að teljast mjög gott.
Seinasti leikurinn var svo gegn Fylki úr Árbænum. Stelpurnar byrjuðu leikinn ekki nógu vel. Eftir nokkrar mínútur fór þó allt að rúlla og okkar stúlkur sigruðu 15-7. Kristrún Steinþórs. skoraði 6 mörk og spilaði frábærlega í vörn, Esther Halls var einnig frábær í vörn og hirti allt sem kom nálægt henni í sókn, en hún spilar línu. Einnig varði Birta 11 skot.

B-liðið spilaði 3 leiki á laugardeginum, var dæmdur sigur gegn Fylki sem mættu ekki í leikinn 5-0. Næsti leikur var svo gegn Haukum og sigruðu stelpurnar þann leik 9-6. Gerður skoraði 4 mörk í þeim leik. Andrea Ýr varði heil 18 skot og fékk 6 mörk á sig í þessum leik sem er 75% markvarsla og verður það að teljast hreint ótrúlegt afrek. Á hún mikið hrós skilið fyrir frammistöðuna.
Seinasti leikurinn var svo gegn sterku liði ÍBV. Leikurinn var ekki nógu góður hjá okkar stelpum sem þó stóðu sig þó með prýði og héldu alltaf áfram. Ágústa skoraði 2 mörk í þeim leik.
Á sunnudeginum töpuðu stelpurnar tveim leikjum, öðrum gegn Fjölni (sem spilar með A-lið sitt sem B-lið) og hinum gegn Gróttu. Stelpurnar stóðu sig allar vel því ekki má gleyma að þrjár af átta leikmönnum liðsins spila með 6. flokki ennþá og tvær af burðarstólpum liðsins þær Þuríður og Stella mættu ekki vegna veikinda eða annarra erinda, þannig ljóst var að á brattan yrði að sækja.
Stelpurnar geta allar verið stoltar af sjálfum sér eftir þessa helgi.
Halldór Stefán Haraldsson.
