Helgina 7.-9. mars verður Landsbankamótið í 6.fl. drengja haldið á Selfossi, Mótið er eitthaldið á Selfossi eitt fjölmennasta handboltamót sem haldið hefur verið hér á landi. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 6. flokki drengja. Á Selfoss munu streyma strákar á aldrinum 10-11 ára. Alls eru 57 lið skráð til leiks og búast má við yfir 600 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í íþróttahúsi Vallaskóla, íþróttahúsi FSu Iðu og nýa íþróttahúsinu við Sunnulækjarskóla sem þó er alveg á mörkunum með að vera nothæft vegna þess hve lítið það er.
Byrjað verður á föstudeginum kl. 16:00 og ekki linnt látum fyrr en að loknum 130 leikjum á seinni part sunnudags. Um 100 starfsmenn koma að mótinu sem krefst mikillar skipulagningar. En þök sé öflugu foreldrastarfi hjá deildinni og fjölmörgum sjálfboðaliðum sem tilbúnir eru að leggja hönd á plóg.
Þetta er í fjórða skiptið sem þetta mót er haldið og hefur það aldrei verið svona umfangsmikið. Það kemur sér mjög vel núna að vera með 50 iðkendur 16 ára og eldri sem sjá um dómgæslu

Selfoss sendir 4 lið til leiks. Eitt A-lið, tvö B-lið annað skipað leikmönnum eldra árs og hitt eingöngu skipað leikmönnum yngra árs. Og loks C-lið sem skipað er leikmönnum úr 7.flokki sem urður deildarbikarmeistar í keppni C-liða í 6. flokki á dögunum.

Það er Landsbankinn á Selfossi sem er aðalstyrktaraðili yngri flokka starfs handknattleiksdeildar og móti ber nú nafn bankans þriðja árið í röð.
Selfoss sendi fjögur lið til keppni á mótinu, ´98 strákarnir leika í Vallaskóla seinni partinn á föstudeginum, ´97 strákarnir keppa í Iðu seinnipartinn á föstudaginn og A- og B-lið ´96 strákanr keppa í Iðu á laugardagsmorguninn. Við hvetjum alla til að kíkja og sjá strákana spila.
