ÍR og Selfoss mættust í Austurbergi í kvöld og lauk leiknum með sigri Selfoss 31-32 í hörku spennandi leik.Það var spennuþrungið andrúmsloftið í Austurbergi í kvöld þegar ÍR fékk Selfyssinga í heimsókn í toppslag í fyrstu deildinni í kvöld. Selfyssingar höfðu harm að hefna frá fyrri viðureign liðanna á Selfossi og ÍR-ingar ætluðu ekki að láta Selfyssinga koma á sinn heimavöll og taka af sér stig.
Það voru ekki margir í stúkunum þegar leikurinn hafðist en áhorfendur skriðu inn eftir því sem leið á leikinn og voru þeir orðnir hátt í 200 þegar mest var.
Leikurinn byrjaði rólega og liðin skiptust á að skora í byrjun. ÍR-ingar héldu tempói leiksins uppi í byrjun leiks og reyndu að nýta sér tvöföldu skiptingu Selfyssinga og gekk það nokkuð vel hjá þeim og skoruðu þeir nokkur mörk úr hraðri miðju með hinn geysiöfluga Davíð Georgsson þar fremstan í fylkingu. Varnir beggja liða voru ekki uppá marga fiska fyrri hlutan af leiknum og þar var markvarslan heldur ekkert betri. Þegar 12 mínútur voru liðnar af leiknum dró til tíðinda þegar Arnar Gunnarsson leikmaður Selfoss fær að líta beint rautt spjalld fyrir brot á ÍR-ing. Brotið leit illa út en treystir fréttaritari sér ekki til að dæma um það hvort rauða spjaldið hafi verið verðskuldað vegna lélegs sjónarhorns. Í kjölfarið af þessu átti sér mikið orðskak stað á milli þjálfara liðanna þeirra Sebastians Alexanderssonar (Selfoss) og Erlends Ísfelds (ÍR) þar sem Erlendur kallaði Sebastian þroskaheftan. Við þetta kom pínu hik í vörn Selfyssinga sem var nú ekki góð fyrir og komust ÍR-ingar 3 mörkum yfir þegar farið var að líða á hálfleikinn. Selfyssingar létu ekki heimamenn slá sig útaf laginu og komu sterkir til baka og minnkuðu muninn rétt fyrir leikhlé í 18-17 og ljóst var að allt stefndi í stórleik.
Í seinni hálfleik var allt í járnum allan tímann. ÍR-ingar voru leiddu þó framanaf en oftast aðeins með einu marki. Um miðjan seinni hálfleikurinn breittist leikurinn, í kjölfar þess að ÍR-ingar misstu boltan oft og fengu oft dæmt á sig skref í sókn, og Selfyssingar riðu á vaðið og komust 2 mörkum yfir en þar voru þeir bráðefnilegu örvhentu leikmenn Guðmundur Árni Ólafsson og Ragnar Jóhannsson fremstir í broddi fylkingar. Á þessum tímapunkti breittist leikurinn til muna og voru varnir beggja liða byrjaðar að spila mun fastari handbolta og í kjölfarið fóru markmennirnir að verja. Finnur Jóhannsson ÍR-ingur var ógnvænlegur fyrir aftan í 3-2-1 vörn ÍR-ingar sem virkaði mjög vel á köflum. Liðin skiptust síðan á að skora til loka leiks en þegar um ein og hálf mínúta var eftir var staðan jöfn 31-31 og ÍR-ingar í sókn. Sókninni líkur með afar slöku skoti og Selfyssingar komast í hraðaupphlaup og skora. 31-32. Þá er hálf mínúta eftir af leiknum. Erlendur Ísfeld tekur þá leikhlé og skipuleggur sókn sinna manna. Hennir líkur þó ekki betur en það að ÍR-ingar kasta boltanum hálf kjánalega í innkast og leiktíminn rennur út. Við það braust út mikill gleði hjá Selfyssingum og fögnuðu þeir líkt og um úrslitaleik bikars væri að ræða.
Við ræddum við Guðmund Árna Ólafsson leikmann Selfoss eftir leik.
Hvernig fannst þér að spila þennan leik og hvernig var að spila við svona reynslubolta eins og Finn Jóhannson?
Ég var sáttur, þetta var sannkallaður baráttusigur, þar sem allir lögðu sitt af mörkum. Annars var ég voða lítið að hugsa um við hverja ég var að spila heldur einbeitti ég mér bara að mínum leik.
Mörk Selfoss.
Ragnar Jóhansson 7 mörk
Guðmundur Árni Ólafsson 5 mörk
Ívar Grétarsson 5 mörk
Ramunas Kalendáskas 4 mörk
Atli Kristinsson 3 mörk
Guðni Ingvarsson 3 mörk
Mikal Dostalik 3 mörk
Gústaf Lilliendahl 2 mörk
Brotvísanir
ÍR 5
Selfoss 3
