Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

5.3.2008 | Handbolti

Öldungaspjall

Sebastian_wideVið byrum auðvitað á þeim elsta af þeim öllum. Þjálfarinn Sebastian Alexandersson og leikmaðurinn Basti en hann hefur verið á skýrslu alls 4 sinnum í vetur og er með 48,25% markvörslu í þeim leikjum. Við verðum því að byrja á því að spyrja hann.

Geturðu þetta ennþá? Nei, alls ekki. Þetta var algjör heppni.

Á ekkert að byrja aftur? Nei, það stendur ekki til nema ég missi a.m.k. 15 kg og hætti að þjálfa m.fl.

Jæja þá að nokkrum léttum spurningum..

Aldur: 38 ára

Ár í boltanum: 24 ár síðan ég byrjaði að æfa handbolta.

Sem þjálfari: Síðan 1992.

Fyrsti leikur í M.fl.: 1988.

Fjöldi leikja í M.fl.: 500+ hætti að telja eftir það. Væri gaman að komast að því.

Fjöldi leikja í Evrópukeppni: 18 með 3 félögum.

Fjöldi landsleikja: 31 fyrir A liðið.

Fyrri félög: Nefni bara þau sem hafa gengist við mér sem fyrrverandi leikmanni eftir að ég fór þaðan: UMFA, Fram og Selfoss. Hin félögin hafa aldrei talið mig upp sem fyrrv. leikmann og því nefni ég þau ekki.

Bestu liðsfélagar: Ósanngjörn spurning. Verð samt að segja að Fram-liðið 1999 - 2002 hafi verið einhver sterkasti hópur móralskt sem ég hef þekkt á lífleiðinni.

Besti þjálfari sem þú hafðir: Allir þjálfarar sem ég hafði hvort sem þeir voru góðir eða slæmir kenndu mér eitthvað. Verð þó að nefna Guðmund Guðmundsson sem var fyrsti þjálfarinn sem gaf mér tækifæri á því að vera aðalmarkmaður en í 7 ár þar á undan þorði enginn að treysta mér eða gefa mér "alvöru" sjens. Það tók mig síðan ekki nema 1 ár að komast í landsliðið eftir að hann þorði því. En að skapa mig sem markmann er annað mál. Þann heiður eiga 3 menn. Sigmar Þröstur sem kenndi mér að nenna að æfa, Brynjar Kvaran sem kenndi mér grunninn og Einar Þorvarðarson sem kenndi mér það sem vantaði uppá.

Hápunktur ferilsins: Tímabilið 1999 - 2000. Fyrsti stóri titill Fram í 28 ár og valinn besti markmaður deildarinnar.

Mestu vonbrigði ferilsins: Tapa Íslandsmeistaratitlinum til Hauka vorið 2000 því að við vorum með besta lið landsins og höfðum verið í toppnum í 10 mánuði en sprungum á lokahindruninni á meðan þeir toppuðu á réttum tíma eftir slakt tímabil.

Besta ákvörðun: Að hafa sett mér skýr markmið um það sem ég vildi afreka og ákveðið að láta engan og ekkert draga úr mér kjark til þess að láta það takast.

Einhver eftirsjá: Að hafa ekki nýtt uppsagnarákvæði í samningnum mínum við Fram og farið til Kolding í Danmörku sem var þá eitt besta lið Evrópu. Þetta var sumarið eftir að þeir duttu út í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Magdeburg sem vann keppnina það ár undir stjórn Alfreðs.

Mesta afrek að þínu mati: Tel mig eiga nokkur met sem ég er mjög stoltur af. 8 víti í einum leik, 7 víti í leik í úrslitakeppninni, 6 sinnum varið meira en 30 skot í leik og mest 35/5 í leik með Selfoss sem fór 26 -23 fyrir okkur, haldið hreinu í landsleik í Kaplakrika í 21 mín., fá bara 2 mörk á mig og verið með 86% markvörslu í þeim hálfleik. Minnir að staðan í hálfleik hafi verið 15 - 2.

Slakasta frammistaða að þínu mati: 8 liða úrslit Fram - Valur vorið 2001. Valur vann 2 - 0. Brást liðinu algjörlega, sérstaklega þar sem ég átti frábært tímabil og var á meðal 3 bestu markmanna deildarinnar það tímabil.

Uppáhaldshús til að spila í: KA-húsið, Safamýri og Vallaskóli.

Erfiðasta hús að spila í: Strandgata, eina hús landsins sem ég náði aldrei góðum leik í.

"Léttasti" andstæðingur: Þeir hafa verið margir. Finnst það óviðeigandi að einhvern.

"Erfiðasti" andstæðingur: Sævar Árna og Jóhann Gunnar hornamenn KA voru grýlurnar mínar í mörg ár.


Comment á erfiðari spurningar..

Fékkstu tækifæri á atvinnumennsku? Já. Spánn, Þýskaland og Danmörk en var alltaf samningsbundinn Fram og félögin vildu ekki greiða fyrir mig og ég bað Fram ekki um að losa mig án greiðslu. Fannst það réttlátt að þeir fengju eitthvað fyrir mig.

Ferillinn, ertu sáttur? Mjög. Á alla verðlaunapeninga sem hafa verið í boði nema einn. Náði öllum markmiðum mínum sem leikmaður nema einu. Held að það sé meira en margir í þessum bransa geta sagt.

Landsliðsferillinn? Of stuttur en frábær lífsreynsla í flesta staði. Fékk reyndar aldrei þessa 50 leiki sem talað er um að menn þurfi til að aðlagast. Það eina sem skyggir á hann er að það hafði ekkert með handboltalega getu mína að gera að ég fór ekki með á HM 2001 en það er önnur saga.

Markvarsla á Íslandi í dag? Verð að segja að ég hef orðið fyrir vonbrigðum með standardinn í N1 deildinni og þá sérstaklega ákveðna menn sem ég hélt að myndu vera komnir lengra á veg í sínum leik. Vill ekki fara nánar út í það. Það hefur reynst mér illa í gegnum tíðina að rugga bátnum of mikið.

Bikarúrslitaleikurinn síðustu helgi? Vonbrigði. Leikurinn varð aldrei skemmtilegur. Hélt auðvitað með Fram en Valur var miklu betra liðið í leiknum.

Handboltinn á Selfossi? Endalaus uppsretta hæfileikaríkra einstaklinga sem eiga eftir að koma Selfossi í hæstu hæðir í íslenskum handbolta fyrr en margir í Reykjavík vilja horfast í augu við. Að því gefnu að leikmennirnir hafi þolinmæði til að vera hér og stjórnarmenn beri gæfu til þess að sjá til þess að svo verði.

Svara að lokum nokkrum í þyngri kantinum..

Lífsspeki? Það hefur margt gáfulegt verið sagt í mannkynssögunni um lífið og það eru mörg atriði sem mér koma strax í huga eins og..
.."Þú ert það sem þú þykist vera, passaðu því hvað þú þykist vera".
.."Það er neyðarlegt að horfa á vandamál sín og vita að það er maður sjálfur og enginn annar sem hefur búið þau til."
.."Bjartsýni þýðir að þú búist við því besta, en sjálfstraust þýðir að þú vitir hvernig á að höndla það versta. Ekki taka ákvörðun ef þú ert einungis bjartsýnn."

En ég hef einhvern veginn bara haldið mig við það að reyna að vera eins góð útagáfa af sjálfum mér eins og ég get verið. Enginn er fullkominn og því er það markmið mitt að reyna að vera eins fullkominn og ófullkominn einstaklingur getur orðið.

Trúirðu? Ég er mjög trúaður trúleysingi. Ég trúi á guð en ekki endilega í þeirri mynd sem okkur er sagt að gera frá bernsku. Ég tel mig vera alveg jafn nálægt guði á hverri stund tilverunnar óháð því hvar ég er staddur.

Hvað kemur þér mest á óvart? Óendanleg græðgi og þroskaleysi mannskepnunnar kemur mér sífellt á óvart.

Við þökkum Sebastian fyrir og fáum næsta öldung í næstu viku.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta