Við ræddum við Sebastian þjálfara Selfoss liðsins fyrir viðureign þeirra við Hauka 2 í kvöld
Nú fáið þið Hauka 2 í heimsókn verður þetta ekki bara auðvelt? Það er enginn leikur auðveldur. Þeir eru bara misjafnlega erfiðir. Oftast nær stjórnast erfiðeikastuðullinn eingöngu af hugarfari okkar sjálfra.
Ætlar þú að mæta með þitt sterkasta lið í leikinn? Ég stilli ávallt upp sterkasta liði hverju sinni eftir því hver andstæðingnum er og hvaða áherslur maður vill hafa í sínum leik. Þá er ég afskaplega lítið fyrir það að tefla fram leikmönnum sem eru tæpir vegna veikinda eða meiðsla nema ég hreinlega neyðist til þess. Það hefur því líka áhrif á valið hverjir eru 100% í leikinn.
Verður fullt hús á Selfossi? Við komumst næst því að fylla húsið á móti ÍR fyrir jól en þá komu um 500 manns á leikinn en húsið er skráð fyrir 600. Ég vona að fólk fjölmenni eftir síðasta sigurleik okkar á útivelli. Við ætlum ekki að tapa fleiri heimaleikjum í vetur en til þess þá þarf fólk að koma og hjálpa okkur eins og það hefur gert frábærlega í allan vetur.
Eruð þið komnir á sigurbraut eftir sigurinn gegn ÍR?Við höfum verið á sigurbraut á heimavelli í tvö ár núna enda afar sjaldgæft að við töpum þar. Hins vegar verð ég að segja að liðið er nú í vetur að sýna miklu betri frammistöðu á útivelli en í mörg ár þar á undan. Já, ég vona að það sé merki um það að við séum að komast á sigurbraut.
Ætli þið ykkur upp um deild í vor? Ég hef sagt það áður að við stefnum á 3 sætið í vetur og að ef sú staða kemur upp að við verðum í sjens þá er það bara bónus. Ég tel að við séum ekki alveg tilbúnir í úrvalsdeildina strax og þá meina ég hugarfarslega. Við þurfum 1 ár í viðbót til að klára að þroskast sem lið.
Það er ekki til neins að ákveða að fara upp án þess að vera með svör við því hvað gerist næst. Við erum að sjá það í vetur hversu erfitt það er fyrir IBV og UMFA að fóta sig í efstu deild. Við verðum að vera með plan sem tryggir það að við séum nógu góðir til þess að halda okkur í deildinni þegar það gerist. Það er ekki skemmtilegt að vera að flakka á milli deilda í nokkur ár. Það drepur bara klúbbinn smám saman innanfrá.
Hvaða leikmann ertu hræddastur við í Haukum?Hef aldrei verið hræddur við neina leikmenn. Góðir leikmenn eiga oft slakan dag og aðrir stíga oft óvænt upp. Ég á ekki spákúlu og því er ég ekkert að spá í þetta. Það eru margir efnilegir strákar í þessu Hauka liði og það verður bara að koma í ljós hverjir eiga góðan dag. Ég hins vegar hef stundum áhyggjur af sumu leikmönnum í mínu liði en það var ekki spurt um það þannig að ég þarf ekki að svara því : )
Spá fyrir leikinn í kvöld?Þar sem þetta er heimaleikur þá er það öruggt að við vinnum en tölur skipta engu máli.
Leikurinn hefst klukkan 19:30 á Selfossi
