Selfyssingar fæddir 1991 sóttu Hauka heim á laugardaginn og var búist fyrirfram við hörkuleik. Haukar hafa á einu besta liði landsins á að skipa og eru þar allir leikmenn fæddir 1990. Okkar strákar lögðu sig alla í verkefnið en því miður dugði það skammt.
Eftir slæma byrjun þar sem Haukar komust í 6-1 var tekið leikhlé og lagaðist leikur okkar manna mikið eftir það. Náðu þeir að minnka muninn í 11-9 en Haukar tóku aftur kipp og leiddu í leikhléi 17-12.
Selfyssingar léku síðari hálfleik lengstum frábærlega. Náðu að minnka muninn aftur í tvö mörk, 18-16. á þessum kafla fór Matthías á kostum og negldi hvert skotið í netmöskva Haukamanna. Er um átta mínútur voru eftir af leiknum leiddu Haukar 24-20 og Selfossdrengir enn með möguleika á að fá eitthvað út úr leiknum. Þá var eins og leikurinn hefði verið flautaður af í þeirra augum. Haukar unnu þessar mínútur 9-2!! Lokatölur því 33-22.
Sorglegt að ná að minnsta kosti ekki að klára leikinn með sóma. Að tapa á útivelli gegn Haukum sem eru allir árinu eldri með 3-5 mörkum er engin skömm. Því miður fór þetta svona en strákarnir læra vonandi af þessu.
Mörk Selfoss:
Matthías 7 mörk. Frábær í vörn og mörkin mörg hver glæsileg.
Árni Steinn 4 mörk, lék vel í vörn.
Örn 3 mörk. Stjórnaði leiknum vel.
Andri Hrafn 3 mörk. Byrjaði frábærlega en náði því miður ekki að fylgja því eftir.
Andri Már 2 mörk. Vantaði meiri áræðni og frekju.
Orri 1 mark. Er að ná sér eftir veikindi og meiðsli. Á mikið inni ennþá.
Trausti 1 mark. Vantaði meiri áræðni og frekju.
Þór 1 mark og fiskaði þrjú vítaköst sem og lék góða vörn.
