Arnar Gunnarsson hefur verið hjá okkur í 5 ár og hneppt hér mörgum hnöppum. Fyrst sem sóknarmaður, svo sem varnarmaður og síðast en ekki síst hefur hann gert frábæra hluti í þjálfun yngri flokka félagsins. Hans tími hér hefur þó einkennst af mikilli óheppni með meiðsli. Verst var þó þegar hans gömlu félagar í Þór bundu enda á ferils hans sem sóknarmanns, en Arnar fór úr axlarlið eftir gróft brot í hraðaupphlaupi. Í kjölfarið fór hann alls 4 sinnum úr lið á næstu 14 mánuðum. Þá varð það endanlega ljóst eftir aðgerð á öxl að hann myndi ekki getað skotið framar á markið af neinu viti.
Jæja þá að nokkrum léttum spurningum..
Aldur: 29 ára.
Ár í boltanum: 13. árið.
Sem þjálfari: 9. árið.
Fyrsti leikur í mfl.: Desember 1995 með KA.
Fjöldi leikja í mfl.: Líklega um eða yfir 300.
Fjöldi leikja í Evrópukeppni: 0
Fjöldi landsleikja: 0 (Var aldrei í Fram).
Fyrri félög: KA og Þór
Bestu liðsfélagar: Erfitt að taka einhvern einn út. Margir sem koma til greina úr Þór, KA og Selfossi.
Besti þjálfari sem þú hafðir: Mikael Abakshev er þjálfaði mig hjá Þór og Alfreð Gíslason hjá KA kenndu mér langmest af því sem ég lærði sem leikmaður. Sem og hann Ester (Árni) er þjálfaði mig hjá bæði Þór og KA.
Hápunktur ferilsins: Sem leikmaður Íslandsmeistari fjórum sinnum, bikarmeistari einu sinni og einu sinni deildarmeistari. Sem þjálfari á ég einnig nokkra titla.
Mestu vonbrigði ferilsins: Meiðsli.
Besta ákvörðun: Líklega er það mín besta ákvörðun að koma á Selfoss.
Einhver eftirsjá: Nei í raun ekki. Fólk á að læra að sætta sig við það sem hefur og reyna að gera vel úr stöðunni sem það er í.
Mesta afrek að þínu mati: Erfitt að segja, titlarnir sem leikmaður og þjálfari kannski.
Slakasta frammistaða að þínu mati: Tel mig alltaf slakan í tapleikjum.
Uppáhaldshús til að spila í: Alltaf kunnað vel við mig í KA-húsinu, gamla heimavelli Vals að Hlíðarenda og svo finnst mér gryfjan okkar á Selfossi frábær heimavöllur og eigum við frábæra stuðningsmenn. Sýnir sig best að oft eru á milli 3-400 áhorfendur á leikjum okkar. Bestu þakkir til allra þeirra sem sem styðja okkur.
Erfiðasta hús að spila í: Ekkert er beint erfitt en sum eru leiðinleg, kuldaleg osfrv.
"Léttasti" andstæðingur: Fór alltaf létt með Árna Sigtryggsson er ég lék með honum og þjálfaði hann.
"Erfiðasti" andstæðingur: Með því að ákveða að einhver sé erfiður ertu að veita þeim hinum sama forskot á þig. Þannig að allir og enginn er svarið.
Comment á erfiðari spurningar..
Fékkstu tækifæri á atvinnumennsku? Nei, enda ekki nógu góður.
Ferillinn, ertu sáttur? Nei, hefði viljað vera heppnari hvað meiðsli varðar þá hefði ferillinn vissulega þróast öðruvísi og ekki verið mismunað eftir félagi hvernig valið er í suma hluti.
Meiðslaferillinn? Er langur og leiðinlegur.
Varnarleikur á Íslandi í dag? Getur verið oft og tíðum grófur og glórulaus. Nefnum engin nöfn eða félög. Mér finnst það megi taka aðeins til í reglunum hvað varðar varnarleik.
Sameining Þórs og KA. Gæfuspor eða ólukka fyrir Akureyri? Ég er fylgjandi þessu en vil auðvitað hafa Þór og KA. En ef þetta á að geta verið tvö lið þarf fjármagn sem og fólk í stjórn. Það gengur illa og því er þetta erfitt. Hins vegar hefur markaðssetningin á liðinu klikkað og tengingin Akureyrar handboltafélags brugðist við yngri flokka Þórs og KA. Gæti skrifað 50 bls. um hvað mér finnst þetta allt.
Handboltinn á Selfossi? Er í sífelldri sókn og vonandi er stutt í að mfl félagsins verði í fremstu röð eftir nokkur ár.
Svara að lokum nokkrum í þyngri kantinum..
Lífsspeki? Ég geri allt fyrir þá sem eru góðir! Og: Það er betra að vera hataður fyrir það sem þú ert en elskaður fyrir eitthvað sem þú ert ekki.
Trúirðu? Á sjálfan mig og þá sem ég treysti. Trúarbrögð eru geðsjúkdómar sem heilbrigt fólk tekur að sér að ganga með.
Hvað kemur þér mest á óvart? Að til er fólk sem ekki elskar og dáir Sylvester Stallone.
Við þökkum Arnari fyrir og fáum næsta öldung í næstu viku.
