Leikur KA gegn 91-strákunum var spennandi og einkenndist af mikilli baráttu. Selfyssingar léku án Ţórs Davíđssonar sem komst ekki í taka tíđ í leikinn ţar sem júdómót er hann tók ţátt í tafđist frameftir degi. Ţór vann gull á mótinu og er honum ţví fyrirgefiđ. Okkar menn byrjuđu leikinn hörmulega og komst KA í 2-7 og 3-9. Á ţeim kafla varđ Selfoss fyrir áfalli er Andri Hrafn Hallsson fór úr axlarliđ í annađ sinn á hćgri hönd eftir um sex mínútna leik. Selfyssingar tóku viđ sér og náđu ađ jafna í 11-11 fyrir leikhlé.
Er síđari hálfleikur var um hálfnađur varđ Selfossliđiđ fyrir einu áfallinu enn er Orri Davíđsson meiddist á ökkla og gat ekki leikiđ meira í leiknum. Međ ţví var liđiđ búiđ ađ missa tvo af sínum sterkustu varnarmönnum og ţá fór vörnin ađ gefa eftir. Fram ađ ţví hafđi Selfoss leikiđ geysilega sterka vörn og var komiđ í 21-17. KA náđi ađ jafna 24-24 en komust ekki yfir. Selfyssingar voru ávallt fyrri til ađ skora og unnu ađ lokum 28-27. Frábćr sigur fyrir strákana og hćgt er ađ ţakka hann ekki síst frábćrum liđsanda og ţví ađ gefast ekki upp ţrátt fyrir mikiđ mótlćti.
Matthías Halldórsson átti góđan leik og dróg vagninn hvađ varnarleik varđar og stjórnađi honum vel. Einnig steig hann er á ţurfti ađ halda í sókninni ţar til hann var tekinn úr umferđ ţá tók Örn viđ og skorađi hann nokkur mikilvćg mörk. Árni Steinn átti góđan leik ţó hann hafi oft veriđ međ betri nýtingu en hann hefur bćtt sig mikiđ varnarlega. Ţá átti Sverrir frábćran leik og varđi oft snilldarlega er liđiđ ţurfti á ađ halda. Ţá var Andri Már drjúgur sem og Anton sem enn er leikmađur 4.flokks. Orri kom einnig međ flottan kraft inn í leik liđsins sem og Trausti.
Tölfrćđi:
Árni Steinn Steinţórsson 7 mörk, 10 brotin fríköst og 3 stođsendingar
Örn Ţrastarson 6 mörk, 5 brotin fríköst og 4 varin skot í vörn
Matthías Halldórsson 5 mörk og 13 brotin fríköst
Andri Már Sveinsson 3 mörk og 5 stođsendingar
Orri Davíđsson 2 mörk og 6 brotin fríköst
Daníel Freyr Jónsson 2 mörk
Anton Freyr Traustason 2 mörk
Andir Hrafn Hallsson 1 mark
Sverrir Andrésson varđi 30 skot
