Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

17.3.2008 | Handboltaakademía

2. flokkur gerði góða ferð til Eyja

Fyrri leikurinn fór 25 - 27 en staðan í hálfleik var 14 - 15. Í fyrri hálfleik spilaði Selfoss afar slappa vörn en hún gjörbreyttist í þeim síðari með tilkomu Baldurs inn í miðja vörnina. Eftir 8 mín. í seinni hálfleik var staðan orðin 15 - 20 og allt virtist stefna í öruggan sigur. Þá hrökk allt í baklás í sókninni og ÍBV barðist inní leikinn aftur með mikilli seiglu. Að lokum hafðist baráttusigur í blálokin. Þess má geta að Selfoss klikkaði á 5 vítum í leiknum og hefði það getað orðið dýrtkeypt þegar upp var staðið.

Tölfræði:
Sjóli 13 mörk úr 17 skotum, 2 stoðs.,3 fráköst, 1 fengið víti, 3 varðir boltar og 7 brotin fríköst
Eyþór 5 mörk úr 9 skotum, 2 stoðs.,2 fráköst, 2 fengin víti og 1 brotið fríkast
Gústi 4 mörk úr 6 skotum, 1 fengið víti og 3 brotin fríköst
Almar 1 mark úr 1 skoti og 1 brotið fríkast
Leifur 1 mark úr 2 skotum, 1 frákast, 1 fengið víti og 6 brotin fríköst
Baldur 1 mark úr 1 skoti, 1 frákast og 6 brotin fríköst
Steinar 1 mark úr 3 skotum, 1 frákast og 6 brotin fríköst
Atli 1 mark úr 2 skotum og 6 brotin fríköst

Ísleifur varði 9 skot (43%)
Ástgeir varði 9 skot (41%)

Dómarar voru Nikolaj Kulikov og Sergei Trotsenko.


Seinni leikurinn spilaðist alveg eins og sá fyrri a.m.k. í fyrri hálfleik. Jafnræði var með liðunum og staðan í hálfleik sú sama 14 - 15. Aftur lagaðist vörnin mikið í seinni hálfleik þegar Baldur kom inn í hana en í þetta skipti hélt skóknin og eins gaf ÍBV eftir þegar fór að líða að lokum leiksins. Lokatölur urðu 21 - 31.

Tölfræði:
Sjóli  10 mörk úr 13 skotum, 2 stoðs.,2 varðir boltar og 14 brotin fríköst
Eyþór  7 mörk úr 13 skotum, 7 stoðs.,1 varinn bolti og 3 brotin fríköst
Steinar  4 mörk úr 8 skotum, 1 stoðs.,2 varðir boltar og 3 brotin fríköst
Sæli  2 mörk úr 4 skotum, 2 fráköst, 1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Kúldi  2 mörk úr 3 skotum, 1 stoðs. og 4 brotin fríköst
Gústi  2 mörk úr 3 skotum, 1 stoðs.,1 frákast, 4 fengin víti og 3 brotin fríköst
Baldur  2 mörk úr 3 skotum, 1 frákast og 14 brotin fríköst
Almar  1 mark úr 1 skoti
Atli  1 mark úr 1 skoti, 4 fráköst, 2 varðir boltar og 9 brotin fríköst

Ástgeir varði 10 skot þar af 2 víti (42%)
Ísleifur varði 9 skot þar af 2 víti (56%)

Dómarar voru Jóhann Pétursson og Sebastian Alexandersson.


Ferðin var góð í alla staði og þjappaði 2. flokki vel saman enda var helgin með skemmtilegasta móti. Nokkur ógleymanleg gullkorn féllu í ferðinni sem munu eflaust verða rifjuð upp í áraraðir. Núna er bara 1 leikur eftir hjá liðinu og er hann á útivelli á móti Stjörnunni. Sigur í þeim leik mun þó ekki duga liðinu í 8 liða úrslit þar sem UMFA hefur betur í innbyrðis viðureignum á móti Selfoss. UMFA er eina liðið sem okkar strákar geta náð að stigum falli úrslit á þann veg. Allir þessir jöfnu leikir sem enduðu með naumu tapi fara bara í reynslubankann fyrir næsta ár. 2. flokkur hefur verið að spila betur og betur í allan vetur, framfarirnar miklar síðan í haust og framtíðin björt hjá þessu liði, enda nánast allir á yngsta ári í 2. flokki.


Áfram Selfoss
 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta