Fjórđi flokkur B-liđ spilađi 2 leiki núna rétt fyrir páska. Strákarnir gerđu jafntefli 18-18 viđ KA í Vallaskóla á sunnudaginn í mjög skemmtilegum leik. Í síđari leiknum töpuđu ţeir fyrir HK 22-18 í Digranes í mjög svo döprum leik.
Selfoss liđiđ mćtti ekki alveg nógu vel vakandi í fyrri hálfleik gegn KA en gestirnir komust fljótt á lagiđ og héldu um 2-3 marka forystu út fyrri hálfleik. Okkar strákar náđu hins vegar ađ klóra í bakkann og međ góđri vörn og skynsemi í sókninni var stađan jöfn í hálfleik 9-9. Selfyssingar náđu síđan snemma forystu í seinni hálfleik, vörnin var fín og ţá helst Jóhann Gylfi og Árni Felix sem héldu henni saman í miđjunni og ţá gekk sóknin einnig fínt og bar ţá helst á Jóhanni Gylfa og Ármanni sem átti fína spretti á köflum. Selfoss hafđi yfirhöndina allan síđari hálfleikinn, en ţađ var einungis fyrir smá klúđurhátt í sókninni sem og ađ Selfyssingar fengu nokkrar brottvísanir undir lok leiksins ađ KA menn náđu ađ koma sér aftur inní leikinn og jafna á lokasekúndunum. Jöfnunarmarkiđ skorađi markmađur ţeirra KA manna, en ţeir spiluđu mikiđ međ 2 línumenn og markmanninn á miđjunni, s.s. 7 manna sókn, en okkar strákum tókst hins vegar mjög vel ađ stöđva ţađ.
Síđari leikurinn var á ţriđjudaginn gegn HK í Kópavogi. Selfossliđiđ var engan veginn í gír í ţeim leik, ţó svo ađ fyrri hálfleikur hafi veriđ mun skárri en sá seinni, en hálfleikstölur voru 8-8. Síđari hálfleikur byrjađi hins vegar skelfilega og skoruđu HK menn 9 mörk gegn 2 mörkum okkar á fyrstu 9 mínútum hálfleiksins og má ţá segja ađ úrslitin hafi veriđ ráđin. Sóknarleikurinn var mjög slappur og má međ sanni segja ađ vörnin hafi gjörsamlega brugđist, var ţađ helst Boga Pétri ađ ţakka ađ munurinn var ekki stćrri í lokin. Má ţví segja ađ ţetta hafi veriđ frekar döpur úrslit, miđađ viđ hve frábćr stígandinn í ţessu liđi er búinn ađ vera í vetur og sérstaklega undanfarnar vikur. Fyrir ári síđan voru ţessir sömu strákar ađ tapa fyrir liđum eins og KA og HK međ í kringum 20 mörkum í hverjum einasta leik. Má ţví međ sanni segja ađ okkar strákar séu á hrađri uppleiđ.
