Hornamaðurinn knái Guðmundur Árni Ólafsson lék með unglingalandliðið Íslands skipað leikmönnum fæddir 1988 og síðar um páskana. En Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að ,,spila upp fyrir sig”. Liðið tók þátt í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið sem haldið verður í Rúmeníu í sumar. Strákarnir byrjuðu á að vinna Norðmenn 34-33 þar skoraði okkar maður 1 mark. Síðan unnu Íslendingar lið Belgíu 36-29 og þar gerði Guðmundur 4 mörk. Hann komst svo ekki á blað í úrslita leiknum gegn Þjóðverjum sem tapaðist 26-34 fyrir framan 2000 áhorfendur. Þar sem aðeins eitt lið fer áfram úr þessum riðli sitja íslensku strákarnir eftir með sárt ennið en stóðu sig enga að síður mjög vel í erfiðasta riðli undankeppninnar.
Guðmundur verður svo væntanlega aftur í eldlínunni í undankeppni fyrir Evrópumeistaramótið í flokki leikmann fæddir 1990 og síðar en sú keppni verður haldin hér á landi um Hvítasunnu-helgina
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
