Sigurinn var aldrei í hættu en engu að síður blikkuðu nokkur viðvörunarljós í þessum leik. Það er mikil heppni að þetta skildi gerast núna en ekki á lokasprettinum mikilvæga sem er framundann.
Sóknarleikur liðsins hefur verið betri þrátt fyrir 36 mörk og var borinn uppi af Sigga Má og Halla að þessu sinni auk þess sem Raggi tók spretti en hvarf þess á milli. Miklu munaði um það að hvorki Einar, Bjarki né Gummi náðu sér á strik í sókninni að þessu sinni. Allir voru þeir með óvenjuslæma nýtingu og það í góðum færum.
Varnarleikurinn var ekki slæmur en alla þolinmæði vantaði í hann. Vörnin braut 51 fríkast í leiknum, varði 10 skot og Helgi varði þar að auki 18 skot (3 víti). Hins vegar gleymdu menn sér óþarflega oft í blálokin á hverri sókn sem einhvernveginn virtist allt of oft enda með marki.
Nú á liðið 3 leiki eftir, þar af 2 á heimavelli. Næsti leikur er á fimmtudaginn á móti ÍR í Austurbergi.
Tölfræði:
Siggi Már 9 mörk úr 11 skotum, 2 stoðs., 1 tapaður bolti, 3 fráköst, 3 varðir boltar og 11 brotin fríköst.
Raggi 8 mörk úr 13 skotum, 6 stoðs., 3 tapaðir boltar, 3 fráköst, 1 varinn bolti og 12 brotin fríköst.
Halli 6 mörk úr 6 skotum, 8 stoðs., 4 tapaðir boltar, 1 frákast og 3 brotin fríköst.
Einar 5 mörk úr 10 skotum, 4 tapaðir boltar, 3 fráköst, 2 fenginn víti, 4 varðir boltar og 10 brotin fríköst.
Gummi 5 mörk úr 12 skotum, 1 tapaður bolti, 2 stolnir boltar, 1 varinn bolti og 5 brotin fríköst.
Bjarki Már 3 mörk úr 6 skotum, 1 tapaður bolti, 3 fráköst og 4 brotin fríköst
Sissi 0 mörk úr 0 skotum og 2 varðir boltar í vörn.
Hemmi 1 brotið fríkast.
Guðbjörn spilaði en komst ekki á blað að þessu sinni.
Hemmi hefur verið meiddur á bæði öxl og ökla og spilaði því afar lítið að þessu sinni. Vonandi að hann sé að braggast.
Áfram Selfoss
